Collector
Giriş Yap
Besta gusuljósmyndin valin | Collector
Besta gusuljósmyndin valin

Besta gusuljósmyndin valin

Finnska sendiráðið í samvinnu við gusumeistarafélags Íslands stóðu í kvöld fyrir viðburði á Ægissíðunni þar sem besta gusuljósmyndin var útnefnd. Ragnar Jón Hrólfsson fréttamaður fór í gusu og ræddi við Völu Baldursdóttur, eiganda Sækots við Ægissíðuna. Finnska sendiráðið átti hugmyndina að ljósmyndakeppninni og sá um að útnefna sigurvegara. Valið á sigurmyndinni var erfitt, að sögn Völu. Spurð að því hvað geri gusuna svona æðislega stendur ekki á svörum: „Ég myndi nú segja fyrst og fremst samveran og náttúran,“ segir Vala.

Go to News Site