Fréttastofa RÚV
Maðurinn sem varð fyrir hrottalegri árás með hníf í Belfast í fyrrakvöld hefur misst annað augað eftir árásina. Frá þessu var greint í dómssal í Belfast í morgun, þar sem árásarmaðurinn kom fyrir dómara. Hann heitir Hadi Alodid og er flóttamaður frá Súdan, en kom til Bretlands 2023 og fékk þá stöðu hælisleitanda. Alodid hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Hann kom fyrir dómara með aðstoð fjarfundabúnaðar í fangelsinu þar sem hann er í varðhaldi. Hann er ákærður fyrir morðtilraun og fyrir að hafa haft hníf í fórum sínum. Aloudi er sakaður um að hafa ráðist að fórnarlambinu á götu í íbúðahverfi í Belfast í fyrrakvöld og stungið hann margsinnis í höfuð og háls. Vegfarendur sem voru nærri náðu að draga Aloudi í burtu og hann var handtekinn skömmu síðar. Mikil mótmæli brutust út í Belfast í kjölfarið og myndböndum af árásinni hefur verið dreift víða á samfélagsmiðlum. Í Glasgow í Skotlandi var lögregla einnig með viðbúnað í gærkvöld, þegar nokkur hundruð grímuklæddir menn hópuðust saman í miðborginni. Mótmælasamkomur voru einnig í Edinborg.
Go to News Site
Grapevine
DV
Viðskiptablaðið
Bæjarins Besta
Mbl
Heimildin
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV
Fréttastofa RÚV