Collector
Giriş Yap
Bókaði SCAM á Hróarskeldu eftir eina eftirminnilegustu tónleika lífs síns | Collector
Bókaði SCAM á Hróarskeldu eftir eina eftirminnilegustu tónleika lífs síns

Bókaði SCAM á Hróarskeldu eftir eina eftirminnilegustu tónleika lífs síns

Hljómsveitin SCAM er tvíeyki Sölku Valsdóttur og Herdísar Stefánsdóttur sem báðar eru tóskáld og framleiðendur. Herdís er með klassískan tónlistarbakgrunn og er þekkt kvikmyndatónskáld sem hefur gert tónlist fyrir kvikmyndir á borð við Eldana í leikstjórn Uglu Hauksdóttur, Knock at the cabin í leikstjórn M. Night Shyalaman og sjónvarpsþættina Vigdísi. Salka er í hljómsveitinni Reykjavíkurdætur, rappari og lagasmiður, en hún gerði líka tónlist fyrir sjónvarpsþættina Húsó. Sveitin varð til þegar þær Herdís og Salka hittust á litlum tónleikastað. Þær spjölluðu saman og fengu hugmynd um að fara í samstarf. „Ég sá Sölku spila á litlum tónleikum í Mengi og sendi henni tölvupóst í kjölfarið þar sem mér fannst hljóðheimurinn hennar svo geggjaður. Í kjölfarið hófst einskonar pennavina vinátta þar sem við skiptumst á hugmyndum í gegnum tölvupóst. Þessi tölvupósts samskipti þróuðust að lokum í samstarf sem ber núna nafnið SCAM,“ segir Herdís í samtali við Menningarvef RÚV. Þær komu fyrst fram saman á sviði á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í nóvember og voru þær fljótlega í kjölfarið bókaðar á Hróarskelduhátíðina í Danmörku, sem er ein stærsta og virtasta tónlistarhátíð í heiminum. Spurð hvernig tónlist þeirra hljómar lýsir Herdís verkefninu sem tilraun til að skapa hljóm sem er í senn ómótstæðilegur, gróskumikið en samt hrjúft, kvenlegt en samt hart: árekstur milli teknó, gabbers, metals, popps og stórra kvikmyndaútsetninga. „Við spiluðum fyrstu tónleikana okkar á Iceland Airwaves nóvember síðastliðinn. Á þessa tónleika mætti Dani að nafni Stefan. Svo heppilega vildi til að Stefan er einn aðal bókari Hróarskeldu hátíðarinnar. Stefan talaði um að tónleikarnir hefðu verið einir þeir eftirminnilegustu sem hann hafði séð í mörg ár og bókaði SCAM samstundis á Hróarskeldu.“ Þær eru afar spenntar fyrir tónleikunum. „Við erum búnar að vinna mörg af okkar lögum fyrir stór hljóðkerfi og þess vegna ótrúlegt að fá að spreyta okkur í ansi stóru hljóðkerfi á þessari sögufrægu hátíð á okkar öðrum tónleikum sem SCAM. Svo er auðvitað líka smá bónus fyrir okkur vinkonurnar að fá að fara í smá barnafrí saman. “ Í tilkynningu frá Hróarskelduhátíðinni segir um komu hljómsveitarinnar: Þær hafa aðeins spilað einn tónleika hingað til. Þessir einu tónleikar, sem fóru fram á Iceland Airwaves í Reykjavík, en gerðu þær strax að stjörnum. Á Roskilde-hátíðinni erum við himinlifandi að geta kynnt þeirra fyrstu evrópsku tónleika.

Go to News Site