Collector
Giriş Yap
Sveitir Hamas sakaðar um stríðsglæpi á Gaza | Collector
Sveitir Hamas sakaðar um stríðsglæpi á Gaza

Sveitir Hamas sakaðar um stríðsglæpi á Gaza

Víga- og lögreglusveitir á vegum hernaðarvængs Hamas hafa framið stríðsglæpi með því að hafa misþyrmt, limlest og drepið tugi eða hundruð manns meðan á stríðinu við Ísrael stóð. AP fjallar um málið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem birt var í gær. Þau sem fyrir urðu voru sökuð um leynimakk með Ísrael, þjófnað á hjálpargögnum og aðrar gripdeildir, fíkniefnabrot og samstarf við aðra palestínska hópa en Hamas. Í stað þess að fara með slík mál fyrir dómstóla hafi lögreglumönnum og vígasveitum verið sigað á fólk. Srinivasan Muralidhar, yfirmaður mannréttindastofnunarinnar, segir tómarúm til þess hafa skapast við linnulausar árásir Ísraelshers og víðtæka eyðileggingu á Gaza. Sameinuðu þjóðirnar segja sveitir á vegum Hamas eiga hlutdeild í næstum fjórðungi þeirra á þriðja hundrað slíkra mála sem rannsökuð voru. Yfir hundrað þeirra lyktaði með drápi. Hamas eru sagðir hafa birt upptökur af athæfinu og þannig hafa viljað skapa ótta og refsa fólki. Allt þetta beri merki stríðsglæpa, glæpa gegn mannúð og mannréttindalögum. Hamas-hreyfingin hefur ráðið ríkjum á Gaza í nærri tvo áratugi og hefur frá því vopnahléð komst á í október reynt að festa sig frekar í sessi.

Go to News Site