Collector
Giriş Yap
Kaldvík í brimróti á Austfjörðum: Skil á ársreikningi hafa tafist vegna tjóns á eldislöxum | Collector
Kaldvík í brimróti á Austfjörðum: Skil á ársreikningi hafa tafist vegna tjóns á eldislöxum

Kaldvík í brimróti á Austfjörðum: Skil á ársreikningi hafa tafist vegna tjóns á eldislöxum

Laxeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum á í fjárhagslegum erfiðleikum um þessar mundir. Ástæðan er fyrst og fremst tap vegna vetrarsára hjá fyrirtækinu á árunum 2024 og 2025. Fyrirtækið þurfti meðal annars að slátra löxum hjá sér sex mánuðum á undan áætlun vegna þessa fyrr á þessu ári. Fyrirtækið ætlaði sér að framleiða ríflega sextán þúsund tonn af eldislaxi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en endaði á því að framleiða aðeins tæplega ellefu þúsund tonn. Fyrirtækið tapaði rúmlega 26 milljónum evra á ársfjórðungnum, eða 3, 7 milljörðum króna. Til samanburðar hagnaðist Kaldvík um tæplega 10 milljóna evru hagnað á fyrsta ársfjórðungi ársins 20025.   Þetta kom fram í árshlutauppgjöri Kaldvíkur sem kynnt var í byrjun mánaðarins og talsvert var fjallað um í erlendum fjölmiðlum, aðallega á sérhæfðum sjávarútvegssíðum . Fjalla er um þetta uppgjör Kaldvíkur og erfiðleika fyrirtækisins í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Sjókvíaeldisfyrirtækið Kaldvík lenti í skakkaföllum út af vetrarsárum á eldislöxum á Austfjörðum sem hefur haft miklar afleiðingar. Fyrirtækið hefur vegna þessa ekki skilað ársreikningi og er komið með gult spjald á hlutabréfamarkaðnum í Noregi. Hráefniskostnaður hærri en tekjur Vegna þessara lífræðilegu áskorana, eins og slík vandræði eru yfirleitt kölluð hjá laxeldisfyrirtækum, hefur Kaldvík ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2025 líkt og fyrirtækið hefði átt að vera búið að gera. Ársreikningnum verður skilað föstudaginn 12. júní. Ástæðan er sú að fyrirtækið lætur nú endurmeta hjá sér virði líffræðilegra eigna í árslok 2025 og þar til búið er að gera það með réttum hætti geta endurskoðendur fyrirtækisins ekki skrifað upp á ársreikning fyrirtækisins. Fyrir vikið hefur fyrirtækið fengið á sig sérstaka skilgreiningu í kauphöllinni í Osló fyrir að vera brotlegt við gildandi lög og reglur, eins konar gult spjald ef svo má segja. Fyrir vikið er fyrirtækið með þennan neikvæða stimpil á sér þar til það hefur skilað ársreikningi. Í svari frá Kaldvík við spurningum fréttastofu um uppgjörið kemur fram að laxeldisfyrirtækið hafi ekki meira um það að segja en komið hefur fram opinberlega. „Kaldvík hefur upplýst markaðinn um stöðu félagsins vegna fyrsta ársfjórðungs 2026, sem og í öðrum viðeigandi tilkynningum félagsins. Ársreikningur og ársskýrsla félagsins fyrir árið 2025 verða birt samkvæmt fjárhagsdagatali félagsins þann 12. júní 2026.“ Ein af spurningum fréttastofu til Kaldvíkur snýst um það af hverju hráefniskostnaður fyrirtækisins hafi verið hærri en heildartekjur þess á fyrsta ársfjórðungi. Hráefniskostnaður var rúmlega 47 milljónir evra á á móti rúmlega 36 milljóna evra tekjum. Kaldvík svaraði ekki þessari spurningu en líklegt má telja að tapið vegna vetrarsáranna og tjóns fyrirtækisins sé inni í þessum mikla hráefniskostnaði. Ísfélagið lét greina virði Kaldvíkur Kaldvík er í dag eitt stærsta laxeldisfyrirtæki Íslands og það eina sem er með starfsemi á Austfjörðum. Rúmlega 200 starfsmenn unnu hjá fyrirtækinu í árslok 2024. Hin tvö stærstu eru Arnarlax og Arctic Fish á Vestfjörðum og svo er annað minna fyrirtæki, Háafell, á Ísafirði. Stærstu hluthafar Kaldvikur í dag er norskt fyrirtæki í eigu fjölskyldu í Noregi sem heitir Måsøval og stórútgerðarinnar Ísfélagsins í Vestmannaeyjum. Måsøval -fjölskyldan hefur fjárfest í laxeldi í Noregi frá því á áttunda áratugnum og er þekkt í heimalandinu. Erfiðleikar Kaldvíkur núna hafa líka birst í opinberum gögnum frá Ísfélaginu. Í ársreikningi Ísfélagsins fyrir árið 2025 sem sagt var frá í lok mars kemur fram að fyrirtækið hafi látið framkvæma virðisrýrnunarpróf á hlutabréfum sínum í Kaldvík. Ástæðan er sú að markaðsvirði hlutabréfa fyrirtækisins var ekki talið endurspegla raunvirði þeirra. Í ársreikningi Ísfélagsins segir um þetta að munurinn á því sem Ísfélagið borgaði fyrir hlutabréfin í Kaldvík og þáverandi markaðsvirði þeirra á hlutabréfamarkaði hafi verið tæplega 42 milljónir dollara eða 5,3 milljarðar króna. Fjárfesting Ísfélagsins í Kaldvík nam rúmlega 66 milljónum Bandaríkjadollara en markaðsvirði bréfanna á hlutabréfamarkaði var komið niður í 24,5 milljónir dollara. Niðurstaða virðisrýrnunarprófsins var hins vegar sú þrátt fyrir þetta, samkvæmt ársreikningi Ísfélagsins, að bókfært virði eignarhlutar þess í Ísfélaginu standi undir virði eignarinnar. Þess vegna var hún ekki færð niður. Forstjóri Ísfélagsins, Stefán Friðriksson, segist ekki getað tjáð sig frekar um eignarhlutinn í Kaldvík umfram það sem kemur fram í ársreikningnum. Í árshlutauppgjörinu kemur líka fram að stærsti hluthafi Kaldvíkur, Austur Holding sem er í eigu Ísfélagsins og Måsøval-fjölskyldunnar, hafi lánað Kaldvík 20 milljónir evra, 2,8 milljarða króna, vegna erfiðleika fyrirtækisins.

Go to News Site