Collector
Giriş Yap
Brim segir upp 20 starfsmönnum á Vopnafirði | Collector
Brim segir upp 20 starfsmönnum á Vopnafirði

Brim segir upp 20 starfsmönnum á Vopnafirði

Útgerðarfélagið Brim segir upp 20 manns sem starfa við uppsjávarvinnslu fyrirtækisins á Vopnafirði. Vísir greindi fyrst frá. Brim birti tilkynningu eftir að fundað var með starfsfólki á Vopnafirði þar sem uppsagnirnar eru staðfestar: „Breytingarnar munu ná til 20 starfsmanna á Vopnafirði og taka gildi frá og með 1. júlí nk. Haft var samráð við fulltrúa stéttarfélaga starfsmanna og mun félagið bjóða þessum hópi samtal um næstu skref og möguleika á vertíðarstörfum hjá félaginu.“ Þetta nær því til um 30% starfsmanna í uppsjávarvinnslu Brims á Vopnafirði. Í Vopnafjarðarhreppi búa rúmlega 600 manns. Árstíðabundnari vinnsla eftir að bolfiskvinnslu var hætt Fyrirtækið skýrir uppsagnirnar með því að eftir að bolfiskvinnslu var hætt árið 2018 sé vinnslan árstíðabundnari en áður var. Aflaheimildir í makríl hafi eins dregist töluvert saman og þar séu enn minni veiðar í sjónmáli á þessu ári en árið á undan. Þrátt fyrir þetta hafi fyrirtækið ekki fækkað heilsársstörfum — fyrr en nú. „Breytingarnar fela í sér að auka hlut tímabundinna vertíðarstarfa í stað heilsársstarfa, sem verða framvegis skipulögð sem tímabundin vertíðarstörf í takt við umfang verkefna og árstíðabundna starfsemi vinnslunnar.“ Í tilkynningunni segir enn fremur að stjórnendur Brims ætli að: „Kappkosta að reyna að skapa heilsársstörf á Vopnafirði, en markmiðið er að reka starfsemina á sjálfbæran hátt til lengri tíma.“ Forstjóri hefur ekki svarað beiðnum fréttastofu um viðtal og þeir starfsmenn sem fréttamenn hafa rætt við vísa á stjórnendur eða tilkynningu á vef fyrirtækisins. Fréttin var uppfærð kl. 14:40.

Go to News Site