Collector
Giriş Yap
Hæstiréttur tekur fyrir mál Steinu hjúkrunarfræðings | Collector
Hæstiréttur tekur fyrir mál Steinu hjúkrunarfræðings

Hæstiréttur tekur fyrir mál Steinu hjúkrunarfræðings

Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings. Landsréttur sakfelldi Steinu í febrúar fyrir manndráp af gáleysi fyrir að hafa árið 2021 banað sjúklingi á geðdeild Landspítalans með því að hella næringardrykk upp í hann með þeim afleiðingum að hann kafnaði. Henni var þó ekki gerð refsing. Mál Steinu hefur velkst um í dómskerfinu árum saman. Hún var fyrst sýknuð í héraðsdómi áður en Landsréttur ómerkti þann dóm og vísaði málinu aftur heim í hérað. Síðan þá hefur hún verið sakfelld í héraði og Landsrétti. Hæstiréttur telur að málið hafi verulega almenna þýðingu og féllst því á að taka málið fyrir. Steina Árnadóttir.RÚV / Ragnar Visage

Go to News Site