Collector
Giriş Yap
Allt að 16 stiga hiti norðaustanlands | Collector
Allt að 16 stiga hiti norðaustanlands

Allt að 16 stiga hiti norðaustanlands

Landsmenn mega víðast hvar gera ráð fyrir einhverri vætu í dag. Þó gæti orðið undantekning á því á Norðausturlandi þar sem bjart verður með köflum. Norðan og austan til er útlit fyrir stinningsgolu og kalda en hægari vindur verður vestan til. Veðurspáin er svohljóðandi: Suðaustan 5-13 metrar á sekúndu en hægari breytileg átt vestan til. Rigning eða skúrir og hiti 8-12 stig en bjartviðri norðaustanlands með hita að 16 stigum. Austlæg átt 5-13 og rigning eða skúrir á morgun en léttskýjað á Norðausturlandi. Hiti 10-15 stig.

Go to News Site