Hvetur Starmer til að segja af sér
Leiðtogi Verkamannaflokksins í Skotlandi kallar eftir breytingum á þingi og vill að forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, segi af sér. Þingmenn stíga fram og lýsa yfir stuðningi við forsætisráðherrann.
Leiðtogi Verkamannaflokksins í Skotlandi kallar eftir breytingum á þingi og vill að forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, segi af sér. Þingmenn stíga fram og lýsa yfir stuðningi við forsætisráðherrann.
Skipuleggjendur Vetrarólympíuleikanna sem nú standa yfir á Ítalíu segjast leggja allt sitt þessa stundina í að komast að því af hverju medalíur sumra verðlaunahafa á leikunum séu að skemmast.
Kona var handtekin af lögreglu fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni í Kópavogi. Hún var talin vera í annarlegu ástandi og var vistuð í fangageymslu.
Einn var fluttur á bráðamóttöku eftir umferðarslys í Árbænum í dag.
Suðurkóreskur embættismaður sem lagði til að fluttar yrðu inn inn ungar konur frá „Víetnam eða Srí Lanka“ til að auka fæðingartíðni landsins hefur verið rekinn úr flokki sínum. Kim Hee-soo, einn æðsti embættismaður Jindo-sýslu í suðurhluta landsins, sagði á opnum íbúafundi í síðustu viku að hægt væri að koma þessum konum í samband við unga Lesa meira
Ummæli Gary Neville í lýsingu Sky Sports á leik Liverpool og Manchester City hafa vakið umræður á samfélagsmiðlum eftir dramatískan 2-1 sigur City á Anfield. Neville lýsti leiknum ásamt Peter Drury á sunnudag. Leikurinn tók mikinn kipp í uppbótartíma seinni hálfleiks þegar Erling Haaland skoraði sigurmark City úr vítaspyrnu. Skömmu síðar, á 113. mínútu, fékk Lesa meira
Elías Georgsson, rúmlega sextugur verkfræðingur frá Reykjanesbæ, sem ákærður er fyrir brot gegn frjálsræði, líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum, í kjölfar dyraats við heimili hans í febrúar árið 2023, segir að hann og eiginkona hans hafi flúið úr húsinu í kjölfar atviksins. Þau hafi ekki búið þar í þrjú ár en haldi til í öðru Lesa meira
Ísland verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla á heimsmeistaramóti karla í handbolta sem fram fer í Þýskalandi næsta janúar.
Daníel Bjarnason joins our Zoom call from Bologna; he’s already bounced between Iceland and abroad multiple times in the past... The post The Grotesque & The Sublime: Daníel Bjarnason Captures Both Light And Darkness In His Upcoming Album appeared first on The Reykjavik Grapevine .
Sendinefnd öldungardeildarþingmanna Bandaríkjaþings heimsótti Grænland í dag til að reyna endurbyggja það traust sem hrundi í kjölfar hótana Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að innlima landið, að því er þingmennirnir segja.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir það hafa verið vont að sjá nýjustu verðbólgutölur. Þær séu hins vegar vegna einskiptisaðgerða. Hún segir hlutina á réttri leið og nefnir t.a.m. að ríkisskuldir hafi lækkað um 10% síðan ríkisstjórnin tók til starfa.
Spænska handboltastjarnan Alex Dujshebaev gengur í raðir þýska félagsins Gummersbach næsta sumar.
Bókin Fellihýsageymslan segir frá frændsystkinunum Þórunni og Santiago sem flækjast inn í atburðarás þar sem fellihýsi, eðlur og forseti Íslands koma við sögu. Hélt að skrif væru bara eitthvað til að gera á eftirlaunaárum Mörtu fannst gaman að skrifa þegar hún var í skóla en sá ekki fyrir sér að hún myndi skrifa bók, alla vega ekki fyrr en hún hætti að vinna. Hún rekur Kaffibrennsluna Valeríu í Grundarfirði og rekst þar á ýmsa skemmtilega karaktera. „Við erum búin að stilla kaffihúsinu svolítið upp þannig að við getum auðveldlega átt samskipti við fólkið sem er að koma.“ Skemmtilegra að skrifa fyrir krakka en fullorðna Mörtu var ráðlagt að skrifa söguna frekar fyrir fullorðna. Hún reyndi það í heilt ár en áttaði sig þá á því að sagan ætti að vera fyrir krakka. „Þarna var þetta ráð til dæmis eitthvað sem ég hefði ekkert átt bara að taka til mín.“ Marta fór þá aftur að skrifa söguna fyrir krakka og fannst það mun skemmtilegra. Hún segist vera krakki í sér og les mikið af barnabókum. Það er svo óheflað einhvern veginn og skemmtilegt og fjörugt og það getur svo margt gerst,“ segir Marta um kostina við að skrifa barnabók. Leikurinn er henni mikilvægur. Hún er skáti og langar alltaf að halda í leikgleðina. Ástæða þess að hún skrifaði þessa sögu er að hún sá fellihýsi í geymslu og fannst það ótrúlega fyndið. Þetta er þvílíkt flykki og tekur svo mikið pláss og hvað er í gangi hérna?“ hugsaði Marta. Hún vissi af fellihýsageymslum um allt land en þegar hún ætlaði að kynna sér þær nánar greip hún í tómt. „Mér fannst það algjör skandall! Þannig ég hugsaði: heyrðu ókei, þá er bara hægt að fylla í eyðurnar með einhverju skáldverki.“ Fékk hjálp litla frænda Þegar kom að því að finna eitthvað óvænt í söguna leitaði hún til litla frænda síns, Magnúsar. „Þú ætlar að setjast hjá mér og ferð ekki fyrr en við erum búin að finna út hvað á að koma á óvart,“ sagði Marta við frænda sinn þar sem þau sátu á Kaffibrennslunni Valeríu. Upp komu hugmyndir eins og myglaður matur og draugar en á endanum ákvað Marta að þetta óvænta ætti að vera iguana-eðlur. Sjálf hefur hún mikinn áhuga á þeim og hefur fylgst með þeim pissa ofan úr tré. Ég gerði mér inhvern tímann rosalanga ferð bara til að geta staðið undir einhverju tré sem þær pissa úr á morgnana. Eðlurnar sofa uppi í trénu, pissa ekki alla nóttina en láta svo vaða um morguninn. Það er eins og tréð sé að pissa.“ „Má ég þetta bara?“ Marta segir að eitt það skemmtilegasta við bókarskrifin hafi verið að skrifa bréf frá þáverandi forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Hún reyndi að ofhugsa bréfið ekki en vildi þó hljóma eins og hann. Hann er alltaf svo peppaður og virðulegur á sama tíma.“ Framhald væntanlegt Næsta bók um frændsystkinin er væntanleg í haust. Marta segir að hún vilji helst gefa næstu tvær bækur í bókaflokknum út á þessu ári en það verði að koma í ljós hvort það tekst. Marta Magnúsdóttir er áhugakona um iguana-eðlur. Í ferð sem hún fór fylgdist hún með þeim pissa og þær koma við sögu í barnabókinni hennar, Fellihýsageymslunni. Rætt var við Mörtu Magnúsdóttur í Hvað ertu að lesa? á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.
„Þörfin er gríðarleg því bara á næstu 5 árum þurfum við hátt í 100 ný rými hér á Suðurlandi. Það má ekki missa sjónar á því að þetta mál snýst ekki um steypu eða stefnu, þetta snýst um það hvernig aðbúnað við viljum tryggja eldri borgurunum okkar. Það þarf að hugsa út fyrir boxið og viðurkenna að það gerir enginn neitt einn. Ríki, sveitarfélög og einkaaðilar þurfa að sameina krafta sína ef ekki á illa að fara. Við hér í Ölfusi ætlum að verða hluti af þessari lausn, með hagsmuni eldri borgara að leiðarljósi,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss, sem berst nú fyrir því að hjúkrunarheimili verði byggt í Þorlákshöfn.
„Þörfin er gríðarleg því bara á næstu 5 árum þurfum við hátt í 100 ný rými hér á Suðurlandi. Það má ekki missa sjónar á því að þetta mál snýst ekki um steypu eða stefnu, þetta snýst um það hvernig aðbúnað við viljum tryggja eldri borgurunum okkar. Það þarf að hugsa út fyrir boxið og viðurkenna að það gerir enginn neitt einn. Ríki, sveitarfélög og einkaaðilar þurfa að sameina krafta sína ef ekki á illa að fara. Við hér í Ölfusi ætlum að verða hluti af þessari lausn, með hagsmuni eldri borgara að leiðarljósi,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss, sem berst nú fyrir því að hjúkrunarheimili verði byggt í Þorlákshöfn.
Phil Parkinson verður þjálfari Wrexham eins lengi og hann listir samkvæmt eigendum liðsins, Rob Mac og Ryan Reynolds. Þeir mæra þjálfarann.