Myndskeið: Rosaleg slagsmál í NBA í nótt
Detroit Pistons hafði betur gegn Charlotte Hornets á útivelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 110:104.
Detroit Pistons hafði betur gegn Charlotte Hornets á útivelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 110:104.
Alls bjuggu 394.530 manns á Íslandi í lok fjórða ársfjórðungs ársins 2025. Þar af voru 202.220 karlar, 192.090 konur og kynsegin/annað voru 210.
Snjallsímar frá farsímaframleiðandanum OPPO eru komnir í sölu á íslenskum markaði. OPPO er fjórði stærsti farsímaframleiðandi heims í dag og hafa vinsældir vörumerkisins aukist hratt á undanförnum árum, eins og kemur fram í tilkynningu. Símarnir frá OPPO eru meðal þeirra vinsælustu í Asíu og hefur vörumerkið verið í mikilli sókn á Evrópumörkuðum upp á síðkastið, Lesa meira
Hópur íbúa í hverfi 108 í Reykjavík hafa sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar íbúafundar sem haldinn var í síðustu viku vegna fyrirhugaðar opnunar kaffistofu Samhjálpar við Grensásveg þar sem þess er krafist að borgaryfirvöld finni starfseminni aðra og meira viðeigandi staðsetningu. Um tvö hundruð manns hafi mætt á fundinn og það hafi verið augljós skoðun íbúa á fundinum að staðsetningin sé óheppileg. Því sé skorað á Reykjavíkurborg að „virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir þrálátar deilur í framtíðinni,“ eins og það er orðað í yfirlýsingunni.
„Þú sérð mig ekki málaða og uppstrílaða á fótboltavellinum um helgar,“ segir hin 47 ára gamla ofurpæja María Gréta Einarsdóttir, framkvæmdastjóri NTC. Maya, eins og hún er gjarnan kölluð, lifir og hrærist í heimi tískunnar og var sömuleiðis að byrja með tískuhlaðvarpið Stílbrot. Hún ræddi við blaðamann um persónulegan stíl, fataskápinn og fleira í þeim dúr.
Lýðræði á Íslandi stendur á tímamótum og Vestfirðir sæta utanaðkomandi árásum. Hver á að ráða framtíð Vestfirðinga?
Franski varnarmaðurinn Jérémy Jacquet gæti þurft að fara í aðgerð á öxl, sem gæti haft áhrif á lokakafla tímabilsins hjá honum. Varnarmaðurinn sem Liverpool keypti í síðustu viku frá Rennes meiddist í leik með franska liðinu um helgina og nú er til skoðunar hvort skurðaðgerð sé nauðsynleg til að leysa vandann til lengri tíma. Ef Lesa meira
Íslenski drykkjarframleiðandinn Icelandic Glacial er nýr styrktaraðili liðs á LIV-mótaröðinni í golfi. Sádar stofnuðu mótaröðina til höfuðs PGA-mótaröðinni árið 2022 til þess að fegra eigin ímynd með svokölluðu íþróttaþvætti.
Kristrún Guðnadóttir átti flottan fyrri keppnisdag á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag, þegar hún keppti í sprettgöngu. Svíar sýndu hins vegar yfirburði sína í undankeppninni.
Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur vikið Paul Green frá störfum.
Boðaðar aðgerðir stjórnvalda til að bregðast við Bakkakotsmálinu eru gott fyrsta skref, segir Jón Magnússon, formaður Samtaka vistheimilabarna. Forsætisráðherra boðaði fyrir helgi sálfræðiaðstoð fyrir drengina í Bakkakoti, rannsókn á Bakkakoti, úttekt á stöðu fósturbarna og skoðun á sannirnisbótakerfinu. Jón segir að einhver verði að bera ábyrgð. „En þetta er mjög gott til að byrja með. Vantar að vísu inn í þetta að það beri einhver ábyrgð. Ef þú stelur samloku í búð ferðu í steininn. Ef þú misþyrmir barni í óratíma og lemur, þá er bara ríkið sem þarf að borga einhverjar smánarbætur eins og var gert í Breiðavíkurmálunum og öllum þeim vistheimilamálum,“ sagði Jón í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Jón segir að hann hafi rætt við aðra sem vistaðir voru í Breiðavík um bótaupphæðir. Talað hafi verið um að fólkið fengið tvær til fjórar milljónir króna í sanngirnisbætur og hámarkið yrði fjórar til sex milljónir. Enginn hafi svo hann viti til fengið hæstu bæturnar. „Þó svo að bæturnar séu ekki það sem þetta snýst um, heldur hafa bætur eins og sektir fælingarmátt. Ef enginn þarf að borga og enginn ber ábyrgð þá gerist þetta aftur og aftur og aftur.“ Engin sanngirni hafi verið í bótunum. „Nei, ríkið var bara að semja við ríkið um hvað þeir vildu borga. Mér fannst þetta ekki sanngjarnt og þetta voru alls ekki sanngirnisbætur.“
Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum hefur ákveðið að halda prófkjör til að velja frambjóðendur á lista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Prófkjörið fer fram föstudaginn 13. mars og framboðsfrestur er til 27. febrúar klukkan sex síðdegis. Flokksbundnir Sjálfstæðismenn sem búa í Vestmannaeyjum og eru kjörgengir í næstu kosningum geta boðið sig fram í prófkjörinu. Þeir þurfa að skila inn framboðsyfirlýsingu með meðmælum minnst 20 flokksbundinna Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Sjálfstæðisflokkurinn er í minnihluta í bæjarstjórn. Í Vestmannaeyjum.RÚV / Oddur Þórðarson
Bandaríski þingmaðurinn Thomas Massie, sem er repúblikani frá Kentucky-ríki, segist hafa uppgötvað nöfn sex manna sem strikað hafði verið yfir í Epstein-skjölunum. Líklegt sé að þeir hafi framið glæpsamlegt athæfi.
Hafrannsóknarstofnun segir í bréfi til atvinnuveganefndar Alþingis að veiðieftirlit Fiskistofu með grásleppuveiðum árið 2025 hafi verið lítið (12 róðrar) og of takmarkað svo hægt sé að gera marktækar greiningar á umfangi meðafla líkt og greiningar fyrri ára hafa aðallega byggt á. Tilefnið er frumvarp til laga um að hverfa frá kvótakerfi í grásleppuveiðum og taka […]
Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá mörgum að nú standa Vetrarólympíuleikarnir yfir á Ítalíu. Þar keppa fimm Íslendingar sem eru einum fleiri en þegar Ísland sendi fyrst keppendur. Fyrstu Vetrarólympíuleikarnir voru haldnir árið 1924 í Chamonix í Frakklandi og svo á fjögurra ára fresti til og með 1936 en eftir það lögðust Ólympíuleikar af í 12 ár vegna seinni heimsstyrjaldarinnar. Þegar þráðurinn var tekinn upp að nýju árið 1948 og haldnir Vetrarólympíuleikar í St. Moritz í Sviss fóru fjórir íslenskir keppendur. Líklega hefði verið hægt að senda fleiri frá Íslandi en vegna gjaldeyrishafta fékkst aðeins leyfi fyrir fjórum keppendum. Þrír þeirra kepptu í alpagreinum, þeir Guðmundur Guðmundsson, Magnús Brynjólfsson og Þórir Jónsson og Jónas Ásgeirsson keppti í skíðastökki. Þrjú bræðrapör í ellefu manna flokki Fjórum árum síðar, árið 1952, þegar næstu Vetrarólympíuleikar voru haldnir í Ósló í Noregi voru engin gjaldeyrishöft og auðveldara um vik að senda stóran og myndarlegan flokk íslenskra keppenda. Óslóarfararnir urðu ellefu talsins þar sem fjórir kepptu í alpagreinum, sex í skíðagöngu og einn í skíðastökki. Merkilegast er þó að þrjú pör íslenskra bræðra kepptu á þessum Ólympíuleikum í Ósló árið 1952. Bræðurnir Haukur (f. 1930, d. 2006) og Jón Karl Sigurðssynir (f. 1932, d. 2019) frá Ísafirði kepptu í alpagreinum, í bruni, stórsvigi og svigi. Þeir voru 20 og 22 ára þegar þeir kepptu á Óslóarleikunum árið 1952. Þess má geta hér að sonur Jóns Karls, Sigurður Jónsson (f. 1959, d. 1996) átti eftir að feta í fótspor föður síns og keppti á tvennum Vetrarólympíuleikum, 1976 í Innsbruck og 1980 í Lake Placid. Ísafjarðarbærður líka í skíðagöngu En áfram um bræðrapörin þrjú sem kepptu í Ósló en hin þeirra kepptu í skíðagöngu. Annars vegar Gunnar (f. 1930, d. 2022) og Oddur Péturssynir (f. 1931, d. 2018) frá Ísafirði. Þeir kepptu báðir í 18 km skíðagöngu en Gunnar var einnig hluti af boðgönguliði Íslands á leikunum. Oddur fór aftur á Ólympíuleikana fjórum árum síðar, 1956 í Cortina d‘Ampezzo á Ítalíu og keppti þar í 15 og 30 km göngu. Mývetningabræður í skíðagöngu Á leikunum í Cortina 1956 keppti Jón Kristjánsson einnig í sömu skíðagöngugreinum og Oddur Pétursson, en Jón hafði farið með Matthíasi bróður sínum á Óslóarleikana árið 1952 og þar koma þriðju bræðurnir til sögunnar. Jón (f. 1920, d. 1996) og Matthías (f. 1924, d. 1998) voru elstir af þessum þrennum bræðrum í Ósló eða 28 og 34 ára. Þeir voru Mývetningar, fæddir á Litlu-Strönd. Matthías keppti í 50 km göngunni í Ósló en Jón í 18 og 50 km göngunum auk þess að vera hluti af íslensku boðgöngusveitinni. Fjórum árum síðar í Cortina keppti Jón í 15 og 30 km göngu. Íslensku ólympíufararnir í Ósló árið 1952 voru meðal neðstu keppenda í sínum greinum og eftir leikana fékk Þjóðviljinn þá til að gera upp leikana. Í fyrirsögn blaðsins sem dró saman orð Íslendinganna sagði: „Þurfum meiri þjálfun, meiri keppnisreynslu við góða menn. Við erum ekki ánægðir enn.“ Fleiri íslensk systkini á Ólympíuleikum Fleiri dæmi eru um íslensk systkini sem keppt hafa á sömu Ólympíuleikunum þó að það hafi aldrei fleiri en eitt systkinapar keppt á sömu leikunum, ekki þrjú eins og í Ósló 1952. Frjálsíþróttabræðurnir Haukur og Örn Clausen úr Reykjavík kepptu á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948 og urðu þá fyrstu íslensku bræðurnir til að keppa á Ólympíuleikum. Á Vetrarólympíuleikunum í Cortina árið 1956 kepptu systkinin Steinþór og Jakobína Valdís Jakobsbörn frá Ísafirði í alpagreinum. Systkinin Bryndís og Magnús Már Ólafsbörn kepptu svo í sundi á Sumarólympíuleikunum í Seoul árið 1988. Þau fetuðu þar með í fótspor móður sinnar Hrafnhildar Guðmundsdóttur sem keppti í sundi á tvennum Ólympíuleikum. Ein bræðratenging til viðbótar tengd 1952 En íslensk systkini hafa líka keppt á sitt hvorum Ólympíuleikunum. Fyrst ber þar að tengja okkur við margnefnda Vetrarólympíuleika í Ósló árið 1952. Þar keppti Siglfirðingurinn Ari Guðmundsson nefnilega í skíðastökki, en átta árum síðar á vetrarleikunum í Squaw Valley í Bandaríkjunum mætti Skarphéðinn Guðmundsson, bróðir Ara, til leiks og keppti einnig í skíðastökki. Tómas Leifsson frá Akureyri keppti í alpagreinum í Innsbruck árið 1976 og átta árum síðar í Sarajevo; árið 1984 keppti svo yngri systir hans, Nanna Herborg Leifsdóttir, á Ólympíuleikunum þar, einnig í alpagreinum. Tómas og Árni Óðinsson, sem keppti líka á Ólympíuleikunum í Innsbruck 1976, voru í viðtali í Mannlega þættinum á Rás 1 í síðustu viku þar sem þeir rifjuðu upp þátttöku sína á Vetrarólympíuleikunum. Þátttaka Íslendinga á Vetrarólympíuleikunum í Ósló árið 1952 var merkileg. Í ellefu manna keppendahópi Íslands mátti þar finna þrjú pör af bræðrum.
Í upphafi síðasta árs voru væntingar um hraðara vaxtalækkunarferli og minni verðbólgu. Raunin varð allt önnur. Verðbólga reyndist þrálát og vextir hafa haldist háir lengur en flestir áttu von á.