Maxwell ætlar ekki að svara spurningum um Epstein

Maxwell ætlar ekki að svara spurningum um Epstein

Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærasta og samstarfskona kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epsteins, ætlar ekki að svara neinum spurningum þegar hún ber vitni fyrir þingnefnd í Bandaríkjunum í dag. Hún kemur fyrir nefndina rafrænt úr fangelsi í Texas. Maxwell hefur setið í fangelsi frá því hún var handtekin í júlí 2020. Hún var samstarfskona og kærasta Epsteins til margra ára. Árið 2021 var hún dæmd í tuttugu ára fangelsi fyrir mansal og fyrir að tæla stúlkur undir lögaldri til fylgilags við Epstein. Í dag ber hún vitni fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Bandaríkjaþings sem hefur mál Epsteins til rannsóknar. Þingmaðurinn Ro Khanna, sem er í nefndinni, hefur upplýsingar um að Maxwell hyggist nýta sér stjórnarskrárvarinn rétt til þess að svara ekki spurningum. Þess í stað ætlar hún að lesa upp yfirlýsingu. Maxwell kemur fyrir nefndina rafrænt úr alríkisfangelsi í Texas, ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær í dag það verður. 30. janúar birti bandaríska dómsmálaráðuneytið þrjár milljónir nýrra skjala sem tengjast Epstein. Í sumum tilfellum er búið að afmá upplýsingar úr skjölunum en frá deginum í dag hafa þingmenn aðgang að skjölunum óritskoðuðum. Birting þeirra hefur haft afleiðingar víða um heim. Nú síðast sagði Mona Juul, sendiherra Noregs í Jórdaníu og Írak, af sér vegna náinna samskipta hennar og eiginmanns hennar við Epstein.

Hiphop-tónlist átti sviðið á verðlaunahátíð Grapevine

Hiphop-tónlist átti sviðið á verðlaunahátíð Grapevine

Alaska1867, Birnir og Digital Ísland eru meðal verðlaunahafa tónlistarverðlauna tímaritsins Reykjavík Grapevine sem haldin voru á Lemmy fyrir helgi. Verðlaunin voru veitt þeim sem þykja hafa skarað fram úr í fyrra. Hiphop-senan var í hámæli þar sem Alaska1867 var valin listamaður ársins, Dyrnar eftir Birni hlaut titilinn besta plata ársins og Digital Ísland átti lag ársins: eh plan? Tónlistarverðlaun Reykjavík Grapevine hafa verið haldin árlega frá 2013. Þetta er því í 14. sinn sem verðlaunin eru veitt. Í ár voru 36 atriði tilnefnd í níu flokkum af dómnefnd sem ritstjórn tímaritsins setti saman. Dómnefndina í ár skipuðu Alexander Le Sage de Fontenay, grafískur hönnuður og tónlistarblaðamaður, Ish Sveinsson Houle og Jóhannes Bjarkason, blaðamenn Reykjavík Grapevine, Kristján Guðjónsson, dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og Maria-Carmela Raso, tónlistarkona og viðburðastjóri. María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, voru meðal þeirra sem afhentu verðlaunin. Ásamt verðlaunahöfum komu fram tónlistarfólkið Knackered og BKPM. Tímaritið Reykjavík Grapevine er gefið út 18 sinnum á ári og hefur verið gefið út síðan 2003. Þar er meðal annars fjallað um menningu, listir, ferðamennsku og þjóðlíf og því er dreift ókeypis um land allt.

Þingeyri: söluskálinn opnar aftur

Þingeyri: söluskálinn opnar aftur

Á laugardaginn var söluskáli N1 á Þingeyri opnaður að nýju eftir sex mánaða lokun eftir viðamiklar endurbætur á húsnæðinu. N1 á húsnæðið og stóð straum af kostnaði við enurbæturnar, sem m.a. fólu í sér endurnýjun á öllum raflögnum hússins og eldhúsi. Rekstraraðilar eru  Dagbjartur Bjarnason og Guðrún Steinþórsdóttir  og ber búðin nafnið Brykkjustöðin. Til sölu […]

Mamman þénar meira en sjö leikmenn liðsins

Mamman þénar meira en sjö leikmenn liðsins

Móðir Kylian Mbappe, Fayza Lamari, þénar meira en sjö leikmenn Real Madrid í hlutverki sínu sem umboðsmaður sonar síns. Lamari, sem er fyrrverandi frönsk landsliðskona í handbolta, hefur séð um feril Mbappe frá því hann var aðeins 15 ára gamall. Samkvæmt portúgalska miðlinum A Bola fær Lamari um 4,5 milljónir evra á ári fyrir störf Lesa meira

„Ég er barn náttúrunnar”

„Ég er barn náttúrunnar”

Úti er þrettán stiga frost, algjör brunagaddur, þegar amerískur GMC-pallbíll með grænlenskum fána blaktandi á pallinum keyrir fram hjá blaðamönnum í myrkri, þar sem þeir fóta sig meðfram sjónum, innan í þyrpingu gamaldags timburhúsa, í leit að kvöldmat. Bíllinn stoppar við eitt af þessum húsum sem stendur uppi í brekku og ekki úr vegi að spyrja bílstjórann út í fánann,...

Ísland ekki undanskilið ógnum í Evrópu

Ísland ekki undanskilið ógnum í Evrópu

Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, segir íslensk stjórnvöld vera að stíga mikilvæg skref til að auka áfallaþol og viðnámsþrótt landsins en þurfi jafnframt að veita orku- og veitufyrirtækjum skýrara umboð til að verja innviði landsins. Ísland megi ekki falla í þá gryfju að halda að ekkert geti gerst hér á landi, nú þegar Rússland á í stríði innan Evrópu.

Ísland ekki undanskilið ógnum í Evrópu

Ísland ekki undanskilið ógnum í Evrópu

Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, segir íslensk stjórnvöld vera að stíga mikilvæg skref til að auka áfallaþol og viðnámsþrótt landsins en þurfi jafnframt að veita orku- og veitufyrirtækjum skýrara umboð til að verja innviði landsins. Ísland megi ekki falla í þá gryfju að halda að ekkert geti gerst hér á landi, nú þegar Rússland á í stríði innan Evrópu.