Fjórir drepnir í loftárásum Rússa
Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir árásir Rússa á borgina Odesa og Karkív-hérað í Úkraínu í nótt.
Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir árásir Rússa á borgina Odesa og Karkív-hérað í Úkraínu í nótt.
„Það er bara ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón, eða hvort það er Íslendingur eða Víetnami. Það gilda augljóslega ekki sömu reglur,“ segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður og verjandi Quangs Le, sem sætir um þessar mundir rannsókn í tengslum við eitt stærsta mannsalsmál sem komið hefur upp hér á landi – og átti upptök sín í matvælageymslu í Sóltúni.
Mæðgur mættust þegar KA/Þór og ÍBV áttust við í úrvalsdeild kvenna í handbolta í gær.
Hinn 46 ára gamli Breti, Aden Durde, varð í nótt fyrsti þjálfarinn frá landi utan Ameríku til þess að fagna sigri í Super Bowl. Hann stýrir vörninni sem lagði grunninn að afar öruggum sigri Seattle Seahawks gegn New England Patriots.
Sjö ár eru í dag liðin síðan Jón Þröstur Jónsson gekk út af hóteli í Dublin, höfuðborg Írlands, og hvarf. Enn hefur leit að honum ekki borið árangur og ekki skýrst hvað varð um hann. Lögreglan á Írlandi hefur enn á ný óskað eftir því að almenningur hafi samband hafi hann einhverjar upplýsingar sem gætu komið að gagni við rannsóknina. „Jafnvel minnstu upplýsingar, sama hversu léttvægar fólki kann að finnast þær, gætu komið að gagni við rannsóknina,“ segir lögreglan í tilkynningu sem hún birti. Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum frá fólki sem var í Whitehall, Santry eða Collins Avenue og nágrenni þegar Jón Þröstur hvarf. Írska lögreglan kom til Íslands í fyrra og tók viðtöl við tugi Íslendinga vegna rannsóknarinnar á hvarfi Jóns Þrastar.
Í dag eru sjö ár frá hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar á Írlandi. Ekkert hefur spurst til hans síðan hann gekk út af hóteli í Dyflinni og ekkert skýrst hvað varð um hann. Lögreglan á Írlandi hefur enn á ný óskað eftir því að almenningur hafi samband hafi hann einhverjar upplýsingar sem gætu komið að gagni við rannsóknina. „Jafnvel minnstu upplýsingar, sama hversu léttvægar fólki kann að finnast þær, gætu komið að gagni við rannsóknina,“ segir lögreglan í tilkynningu sem hún birti. Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum frá fólki sem var í Whitehall, Santry eða Collins Avenue og nágrenni þegar Jón Þröstur hvarf. Eiríkur Valberg, lögreglufulltrúi í miðlægri rannsóknardeild lögreglu á höfuðborgarsvæðinu, segir írsku lögregluna hafa tekið málið föstum tökum og málið sé galopið. „Við erum að leita til almennings eftir eftir upplýsingum og biðja hvern þann sem kann að hafa einhverjar upplýsingar, sem gætu nýst í rannsókn málsins, að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu eða írsku lögregluna. Með hvaða upplýsingar sem þau hafa og hversu smávægilegar sem þær kunna að vera. Þær gætu nýst við málið,“ segir Eiríkur. Írska lögreglan kom til Íslands í fyrra og tók viðtöl við tugi Íslendinga vegna rannsóknarinnar á hvarfi Jóns Þrastar. RÚV og RTÉ unnu sameiginlega að rannsókn málsins og gerð útvarpsþáttanna Where is Jón? sem birtust í íslenskri aðlögun sem Hvar er Jón? Sjö árum eftir að Jón Þröstur Jónsson hvarf í Dyflinni, óskar lögreglan enn eftir upplýsingum sem geta komið að gagni. Írska lögreglan hefur tekið málið föstum tökum og málið er galopið, að sögn Eiríks Valbergs, rannsóknarlögreglumanns.
Í umsögn Umsögn Reykjavíkurborgar um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040, sem liggur fyrir Alþingi er vakin athygli á því í tilefni af áformum um endurbyggingu á núverandi flugstöð og byggingu nýrrar flugstöðvar vilji Reykjavíkurborg árétta eftirfarandi: 1. Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 gerir ráð fyrir að flugvallarstarfsemi í Vatnsmýriverði lögð af á skipulagstímabilinu, sbr. […]
Það er grimmur veruleiki að verða fyrir heilsutjóni vegna læknamistaka. En þegar sá aðili sem á að bæta tjónið – tryggingafélag læknisins, neitar að axla ábyrgð og sendir tjónþolann í hringi í kerfinu eykur það byrði tjónþolans enn frekar.
Donald Trump Bandaríkjaforseti var allt annað en sáttur við hálfleiksatriðið í úrslitaleik Ofurskálarinnar, úrslitaleiknum NFL-deildarinnar í amerískum ruðningi, sem fram fór í Kaliforníu í nótt þar sem Seattle Seahawks vann stórsigur gegn New England Patriots.
Dómstóll í Hong Kong dæmdi fjölmiðlamógúlinn Jimmy Lai í 20 ára fangelsi í nótt.
Kyle Walker, fyrrum leikmaður stórliða Manchester City, Tottenham og AC Milan og nú Burnley, á von á sínu fimmta barni með eiginkonu sinni Annie Kilner eins og fram kom um helgina. Annie er sögð eiga von á barninu í júní, en þau tilkynntu fjölskyldu og nánum vinum tíðindin yfir jólahátíðina. Parið á fyrir fjóra syni. Lesa meira
Alls voru fjórir handteknir vegna tveggja líkamsárása, annars vegar í miðbæ Reykjavíkur og hins vegar í Árbænum.
Seattle Seahawks bar sigur úr býtum í Ofurskálarleiknum í amerískum fótbolta í San Francisco í nótt.
Birgir Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri Norðurflugs, er látinn, 71 árs gamall. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag en hann lést eftir veikindi á líknardeild Landspítalans þann 7. febrúar síðastliðinn. Birgir fæddist 24. janúar 1955 og ólst hann upp í Vogahverfinu. Hann lauk stúdentsprófi frá Tækniskólanum árið 1974 og nam svo skipaverkfræði við Háskólann Lesa meira
Félagsfærni barna fer dvínandi, líkt og hjá fullorðnu fólki þökk sé tæknirisunum. Birtingarmyndin er aukinn kvíði, depurð, einmanaleiki, óttinn við að taka frumkvæði og eiga samskipti. T.d. kýs margt fólk ferkar að senda texta- eða hljóðskilaboð í stað beinna samtala þar sem svör má íhuga, í stað þess að þurfa að bregðast við í rauntíma.
Breski skíðamaðurinn Gus Kenworthy mun ekki sæta refsingu eftir að hafa virst míga grófum skilaboðum í snjóinn um innflytjenda- og tollaeftirlit Bandaríkjanna (ICE) og birt síðan mynd af því á netinu.