Myndskeið: Kominn á blað í Þýskalandi
Stefán Teitur Þórðarson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Hannover er liðið sigraði Holstein Kiel, 3:1, á heimavelli í B-deild Þýskalands í fótbolta í gær.
Stefán Teitur Þórðarson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Hannover er liðið sigraði Holstein Kiel, 3:1, á heimavelli í B-deild Þýskalands í fótbolta í gær.
„Það lítur út fyrir að þessi skjálftahrina sé að fjara út en það er samt svolítið eftir af henni,“ segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is en yfir 300 jarðskjálftar hafa mælst við Eldey frá því í gær.
Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búna að missa klefann.
Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“.
Reykjavík er höfuðborgin okkar. Það er ágætt að rifja það upp öðru hverju, svona rétt áður en við ræðum um grunnatriði eins og að fólk komist óbrotið á milli staða, börn fái þjónustu, íbúar komist í og úr vinnu án tafa í umferð vegna þrengingar gatna.
Umdæmi Brunavarna Árnessýslu liggur frá Bláfjallaafleggjara að Þjórsá, að Kerlingafjöllum niður að sjó til Þorlákshafnar. Sjö slökkviðliðsstöðvar í átta sveitafélögum vinna sem ein liðsheild. „Við lítum á Selfoss sem miðjustöð með mesta búnaðinn og sendum mannskap á milli sem stuðning í útköllum“ segir Pétur Pétursson slökkviliðsstjóri. Æfingar eru samræmdar og áhersla lögð á að starfsmenn séu færir á allan tiltækan búnað og geti gripið í hann hvar sem er. „Hugsunin er að fólk fái sömu kennslu og kynnist innbyrðis á æfingum og það skiptir verulegu máli“ segir Eyjólfur Óli Jónsson varðstjóri á Laugarvatni. „Munurinn á milli útstöðvanna og stöðvarinnar á Selfossi er í raun ekki mikill, það eru bara fleiri tæki á Selfossi“. Fyrirhugað er að bæta áttundu stöðinni við að Borg í Grímsesi.
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, reynir nú í örvæntingu að tryggja stöðu sína í embætti forsætisráðherra. Stjórnarandstæðingar hafa kallað eftir afsögn ráðherrans eftir að í ljós kom að Starmer og starfsfólk hans var meðvitað um vinskap Peter Mandelson og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein þegar sá fyrrnefndi var skipaður sendiherra í Bandaríkjunum.
Einn er enn í haldi lögreglu vegna hnífsstunguárásar í miðborg Reykjavíkur á laugardagskvöld. Þrír voru handteknir vegna málsins í gær. Tveimur hefur verið sleppt, segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglu. Árásin varð fyrir utan skemmtistað í miðborginni um klukkan hálf tólf fyrir miðnætti. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en árásarmaðurinn flúði af vettvangi. Áður komið til kasta lögreglu Að sögn Elínar Agnesar virðist ekki vera tenging á milli þeirra tveggja. Sá sem varð fyrir árásinni er á þrítugsaldri og var útskrifaður af spítala í gærmorgun. Áverkar hans reyndust ekki lífshættulegir. Rannsókn er í fullum gangi og lögreglan telur sig hafa einhverja mynd af tilefni árásarinnar. Árásarmaðurinn verður yfirheyrður í dag, en ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Elín Agnes segir hann áður hafa komið til kasta lögreglu, og líka annar hinna tveggja.
Sumum finnst að jafnrétti sé „alveg að koma“ hér á Íslandi, og kannski ekki furða. Við höfum jafnréttislög, jafnréttisáætlanir, og jafnréttisnefndir. Samt heyrum við – aftur og aftur – sögur af fólki sem upplifir útilokun, vantrú á kerfinu, óöryggi eða einfaldlega að rödd þeirra fái ekki sama vægi og raddir annarra.
Sonja Líf Kristinsdóttir er óvænt á leið til keppni á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu og fetar þar með í fótspor föður síns, Kristins Magnússonar, sem keppti á leikunum í Salt Lake City árið 2002. Þau hittast í Cortina á morgun.
Frank Ilet, hinn víðfrægi Manchester United-aðdáandi sem hefur beðið með að klippa sig þar til liðið vinnur fimm leiki í röð, hefur opinberað áætlun sína fyrir viðureignina gegn West Ham United annað kvöld. United heimsækir West Ham og gæti unnið sinn fimmta leik í röð, en bráðabirgðastjórinn Michael Carrick hefur farið stórkostlega af stað í Lesa meira
Aðeins tvö skip lönduðu afla í Ísafjarðarhöfn í síðasta mánuði. Togarinn Páll Pálsson ÍS landaði 8 sinnum í janúar samtals 552 tonnum af bolfiski. Frystitogarinn Júlís Geirmundsson ÍS landaði einu sinni, 109 tonnum af afurðum.
Aðalmeðferð hófst í morgun í máli Héraðssaksóknara á hendur manni, sem grunaður eru um að hafa nauðgað ungri stúlku og eiginkonu sinni og birt myndefni af nauðgununum á netinu.
Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta, lék allan leikinn með sænska liðinu Malmö er liðið mátti þola tap gegn Jeonbuk frá Suður-Kóreu í æfingaleik á Marbella á Spáni í gær.
Umræða um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu hefur á köflum þróast í skotgrafir þar sem einkabíll og almenningssamgöngur eru sett fram sem andstæður. Slík nálgun er hvorki skynsöm né til hagsbóta fyrir samfélagið. Samgöngukerfi nútímaborgar þarf að byggja á samspili ólíkra ferðamáta, ekki útilokun.
Enn skelfur sjávarbotn við Eldey. Klukkan 11:27 varð skjálfti 3,0 að stærð og er hann einn stærsti skjálftinn í hrinunni sem nú telur yfir 300 jarðskjálfta. Stærsti skjálftinn varð rétt fyrir klukkan fimm síðdegis í gær, 3,4 að stærð. Tveir skjálftar síðdegis í gær voru 3,2 að stærð. Jarðskjálftahrinan hefur verið misjafnlega áköf, aðeins dró úr henni upp úr miðnætti og aftur upp úr sex í morgun en hún hefur síðan færst í aukana á ný. Eldey.Rúv / RÚV