Ó­víst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skóla­skyldu

Ó­víst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skóla­skyldu

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar um hversu mörg börn á Íslandi sækja ekki skóla, þrátt fyrir skólaskyldu í landinu. Ráðuneytið safnar ekki upplýsingum frá sveitarfélögum um skólasókn barna með kerfisbundnum hætti en miðlægum nemendagrunni verður ætlað að veita ráðuneytinu heildarsýn yfir stöðu mála og hægt verði að nýta gögn þaðan til að bæta gæði skólastarfs, þjónustu, stefnumótun og forgangsröðun stjórnvalda í skólamálum.

Hlutfall fólks á örorku hækkað um tæplega fimmtíu prósent

Hlutfall fólks á örorku hækkað um tæplega fimmtíu prósent

Hlutfall fólks á örorku- og endurhæfingarlífeyri hækkaði um 49% frá aldamótum til 2024, úr 6,3% í 9,4%, meðal fólks á vinnumarkaði. Mest hefur fjölgað greiningum á þunglyndi, kvíða, verkjavanda, ADHD og einhverfu. Þetta kemur fram í nýrri íslenskri rannsókn Odds Ingimarssonar, geðlæknis og lektors við læknadeild Háskóla Íslands. Í janúar 2025 voru tveir þriðju af hópnum með geðgreiningar en tæplega helmingur með greiningar tengdar stoðkerfi. Þá hefur einnig orðið aukning í greiningum eftirstöðva veirusýkinga, streitu og alvarlegrar kulnunar. Meira um veikindi sem erfitt reynist að meta Niðurstöðurnar eru taldar varpa ljósi á þróun sjúkdómsbyrði samfélagsins á tímabilinu, þar sem algengi langvinnra og flókinna sjúkdóma sem oft tengjast geðhag og lífsstíl hefur verið að aukast. Rannsóknin sýnir að mun meira er orðið um veikindi þar sem oft reynist erfitt að meta hversu mikil skerðingin er til að sinna vinnu. Samspil veikinda, félagslegrar stöðu og fjárhagslegra hvata til að stunda vinnu sé flókið. Þetta komi vel fram hjá einstæðum mæðrum á aldrinum 30 til 39 ára, þar sem hlutfall örorku er 25% ef börn eru eitt til tvö, 36% ef börn eru þrjú, en er 51% ef börn eru fjögur eða fleiri. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er örorku- og endurhæfingarlífeyrir mun hærri hjá konum en körlum. Árið 2025 var hlutfallið 61% hjá konum en 39% hjá körlum. Örorka hjá einstæðum mæðrum er talin skýra að hluta til þennan mun.

Fólki á endurhæfingu og örorku fjölgað um helming frá aldamótum

Fólki á endurhæfingu og örorku fjölgað um helming frá aldamótum

Hlutfall fólks á örorku- og endurhæfingarlífeyri hækkaði um 49% frá aldamótum til 2024 meðal fólks á vinnumarkaði. Árið 2000 var hlutfallið 6,3% - en var komið upp í 9,4% árið 2024. Mest hefur fjölgað greiningum á þunglyndi, kvíða, verkjavanda, ADHD og einhverfu. Þetta kemur fram í nýrri íslenskri rannsókn Ólafs Ó. Guðmundssonar, tryggingayfirlæknis, Haralds Jóhannssonar, læknis og Guðmundar Helga Hjaltalín, kerfisfræðings. Í janúar 2025 voru tveir þriðju af hópnum með geðgreiningar en tæplega helmingur með greiningar tengdar stoðkerfi. Þá hefur einnig orðið aukning í greiningum eftirstöðva veirusýkinga, streitu og alvarlegrar kulnunar. Meira um veikindi sem erfitt reynist að meta Niðurstöðurnar eru taldar varpa ljósi á þróun sjúkdómsbyrði samfélagsins á tímabilinu, þar sem algengi langvinnra og flókinna sjúkdóma sem oft tengjast geðhag og lífsstíl hefur verið að aukast. Rannsóknin sýnir að mun meira er orðið um veikindi þar sem oft reynist erfitt að meta hversu mikil skerðingin er til að sinna vinnu. Samspil veikinda, félagslegrar stöðu og fjárhagslegra hvata til að stunda vinnu sé flókið. Þetta komi vel fram hjá einstæðum mæðrum á aldrinum 30 til 39 ára, þar sem hlutfall örorku er 25% ef börn eru eitt til tvö, 36% ef börn eru þrjú, en er 51% ef börn eru fjögur eða fleiri. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er örorku- og endurhæfingarlífeyrir mun hærri hjá konum en körlum. Árið 2025 var hlutfallið 61% hjá konum en 39% hjá körlum. Örorka hjá einstæðum mæðrum er talin skýra að hluta til þennan mun.

Fýkur hárið hjá hárprúða United manninum?

Fýkur hárið hjá hárprúða United manninum?

Leikmenn Manchester United gætu bjargað hinum hárprúða Frank Ilett úr 493 daga langri prísund í dag. Frank sagðist ekki ætla að klippa hár sitt þangað til að liðið myndi vinna fimm leiki í röð. Hann byrjaði á þessu í október 2024 og síðan þá hefur gengi United verið nokkuð slakt. En undir stjórn Michael Carrick hefur liðið unnið fjóra leiki í röð og vinni liðið West Ham í dag fýkur hár Ilett. Sigrar United frá því Carrick tók við: Manchester City Arsenal Fulham Tottenham Liðið leikur gegn West Ham klukkan 20:15 í kvöld. Þessi maður hefur tekið yfir algrímið hjá ákveðnum hópi fólks en aðrir koma af fjöllum og hafa aldrei heyrt um kauða. Ilett gengur undir nafninu The United Strand á samfélagsmiðlum og er kominn með 1,2 milljónir fylgjenda á Instagram. Stjórinn Carrick hefur einnig tjáð sig um málið. Carrick sagði nýlega um málið: „Ég er meðvitaður um þetta. Börnin mín gerðu mér grein fyrir þessu. En ég er fagmaður og þetta mun ekki fara inn í liðsfundinn. Ég skil hvað er að gerast og það fær mig til að brosa, en þetta mun ekki hafa nein áhrif í lok dags.“ Frank hyggst horfa á leikinn í beinu streymi á samfélagsmiðlum sínum. Auk þess hefur hann lofað að gefa hárið til góðgerðarmála ef United vinnur fimmta leikinn.

Ásta Lóa fór ekki út úr húsi í nokkrar vikur eftir afsögnina – Þakkar gífurlegan stuðning almennings

Ásta Lóa fór ekki út úr húsi í nokkrar vikur eftir afsögnina – Þakkar gífurlegan stuðning almennings

Ásta Lóa Þórsdóttir, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi barnamálaráðherra, var í viðtali við Samstöðina. Þar ræddi hún þjóðmálin vítt og breitt, ekki síst vaxta-, húsnæðis- og lánamál, en í síðari hluta viðtalsins opnaði hún sig um tímann í kringum afsögn hennar úr ráðherraembætti í marsmánuði árið 2025. Sagði hún af sér í tengslum við játningu á Lesa meira