Móðir Kylian Mbappe, Fayza Lamari, þénar meira en sjö leikmenn Real Madrid í hlutverki sínu sem umboðsmaður sonar síns. Lamari, sem er fyrrverandi frönsk landsliðskona í handbolta, hefur séð um feril Mbappe frá því hann var aðeins 15 ára gamall. Samkvæmt portúgalska miðlinum A Bola fær Lamari um 4,5 milljónir evra á ári fyrir störf Lesa meira
Úti er þrettán stiga frost, algjör brunagaddur, þegar amerískur GMC-pallbíll með grænlenskum fána blaktandi á pallinum keyrir fram hjá blaðamönnum í myrkri, þar sem þeir fóta sig meðfram sjónum, innan í þyrpingu gamaldags timburhúsa, í leit að kvöldmat. Bíllinn stoppar við eitt af þessum húsum sem stendur uppi í brekku og ekki úr vegi að spyrja bílstjórann út í fánann,...
Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, segir íslensk stjórnvöld vera að stíga mikilvæg skref til að auka áfallaþol og viðnámsþrótt landsins en þurfi jafnframt að veita orku- og veitufyrirtækjum skýrara umboð til að verja innviði landsins. Ísland megi ekki falla í þá gryfju að halda að ekkert geti gerst hér á landi, nú þegar Rússland á í stríði innan Evrópu.
Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, segir íslensk stjórnvöld vera að stíga mikilvæg skref til að auka áfallaþol og viðnámsþrótt landsins en þurfi jafnframt að veita orku- og veitufyrirtækjum skýrara umboð til að verja innviði landsins. Ísland megi ekki falla í þá gryfju að halda að ekkert geti gerst hér á landi, nú þegar Rússland á í stríði innan Evrópu.
Írska lögreglan segir rannsókn á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni fyrir sjö árum enn í gangi og biðlar aftur til almennings um upplýsingar. Írskir lögreglumenn ræddu við um sextíu manns á Íslandi í fyrra.
Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni Þorsteins Hermanns Björnssonar sem banaði sambýliskonu sinni í Naustahverfi á Akureyri í hittifyrra. Dómstóllinn leit sérstaklega til þess við ákvörðun sína að Landsréttur dæmdi Þorstein fyrir manndráp en Héraðsdómur Norðurlands eystra sakfelldi hann aðeins fyrir alvarlega líkamsárás sem leiddi til dauða konunnar. Þorsteinn hafði lengi beitt sambýliskonu sína ofbeldi og taldi dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra því ekki víst hvort hann hefði ætlað að drepa konuna þegar hann varð henni að bana. Landsréttur taldi hins vegar að honum hefði ekki getað dulist að árásin var svo ofsafengin að hún gæti leitt til dauða. Þorsteinn leitaði til Hæstaréttar og bað um að dómstóllinn kvæði upp endanlegan dóm um ákæruna gegn sér. Verjandi hans sagði að verknaðarlýsing í ákæru væri óskýr og því hefði átt að vísa málinu frá. Í það minnsta hefði ekki átt að sakfella hann fyrir manndráp. Auk þess taldi hann að meta þyrfti sönnunargildi matsgerða dómkvaddra manna og annarra sérfræðilegra gagna með hliðsjón af veikindum og þýðingu þeirra fyrir ákvörðun refsingar. Verjandinn sagði augljóst að Landsréttur hefði komist að rangri niðurstöðu með því að sakfella Þorstein Hermann fyrir manndráp en ekki líkamsárás. Það varð til þess að refsing hans þyngdist um fjögur ár. Hæstiréttur sagði að úrlausn málsins kynni að hafa verulega almenna þýðingu og vísaði jafnframt til þess hvernig sakfelling breyttist milli lægri dómstiga.
Saga einnar þekktustu byggingar heims, hins svonefnda „tenings“ í París, rakin.
Nú þegar Sonja Lí Kristinsdóttir hefur fengið úthlutað sæti í alpagreinum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu er ljóst að hún og faðir hennar bætast í fámennan hóp Íslendinga. Kristinn keppti nefnilega á Vetrarólympíuleikunum árið 2002 í Salt Lake City. Aðeins fáein dæmi eru um það í íslenskri ólympíusögu að börn feti í fótspor foreldra sinna og keppi á Ólympíuleikum. Eftir því sem næst verður komist voru feðgarnir Vilhjálmur Einarsson (þrístökk á ÓL 1956 og 1960) og spjótkastarinn Einar Vilhjálmsson (ÓL 1984, 1988 og 1992) fyrstir Íslendinga til að afreka þetta. Tvö börn Hrafnhildar kepptu líka í sundi Á Sumarólympíuleikunum í Seoul árið 1988 tókst sund-systkinunum Bryndísi og Magnúsi Má Ólafsbörnum svo að feta í fótspor móður sinnar Hrafnhildar Guðmundsdóttur. Hrafnhildur keppti í sundi á Ólympíuleikunum 1964 og 1968. Á Vetrarólympíuleikunum í Albertville árið 1992 náði Örnólfur Valdimarsson svo að leika eftir afrek föður síns, Valdimars Örnólfssonar sem keppti í alpagreinum á leikunum í Cortina árið 1956. Tvennir handboltafeðgar Þá voru tveir úr handboltalandsliði Íslands á Sumarólympíuleikunum í Beijing árið 2008 sem bættust í þennan hóp. Arnór Atlason og Logi Geirsson. Geir Hallsteinsson faðir Loga hafði keppt í handbolta fyrir Ísland á Ólympíuleikunum í München árið 1972 og Atli Hilmarsson faðir Arnórs með handboltalandsliðinu í Los Angeles 1984 og í Seoul 1988. Arnór keppti einmitt líka á tvennum leikum eins og Atli því Arnór var einnig með Íslandi á leikunum í London árið 2012. Nú munu svo feðginin Kristinn Magnússon (ÓL 2002 í Salt Lake City) og Sonja Lí Kristinsdóttir bætast við þennan hóp.
Frumvarp sem lýtur að tengingu bóta almannatryggingakerfisins við launavísitölu er nú í þinglegri meðferð. Á síðasta þingi voru gerðar margvíslegar athugasemdir við sams konar frumvarp sem lagt var fram á síðasta þingi og náði ekki fram að ganga
Sonja Lí Kristinsdóttir er óvænt komin með þátttökurétt á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur deilt á facebooksíðu sinni tilkynningu lögreglunnar í Dyflinni á Írlandi vegna hvarfs Jóns Þrastar Jónssonar þar sem óskað er eftir upplýsingum frá almenningi og minnt á að málið er enn óupplýst.
Icelandic authorities have hired the lobbying and law firm Brownstein Hyatt Farber Schreck to represent the country in Washington D.C..... The post Icelandic State Hires Lobbyists In Washington D.C. appeared first on The Reykjavik Grapevine .
Vilhjálmur prins af Wales og kona hans Katrín prinsessa eru sögð hafa miklar áhyggjur vegna nýjustu afhjúpana í tengslum bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein.
Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að um fjórir af hverjum tíu Íslendingum telji að það geti verið góður kostur að gera Íslendinga að þegnum í Evrópusambandinu. Það er áhyggjuefni.
Carglass hefur hafið starfsemi á Íslandi og opnað nýtt verkstæði að Dalshrauni 20 í Hafnarfirði. Fyrirtækið er þekkt víða um heim fyrir sérhæfða þjónustu á sviði bílrúða og leggur ríka áherslu á rúðuviðgerðir fremur en skipti þegar það er mögulegt. Markmiðið er að bjóða skilvirka þjónustu sem sparar bæði tíma og kostnað fyrir ökumenn.