Hæstiréttur dæmir í máli manns sem drap konuna sína

Hæstiréttur dæmir í máli manns sem drap konuna sína

Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni Þorsteins Hermanns Björnssonar sem banaði sambýliskonu sinni í Naustahverfi á Akureyri í hittifyrra. Dómstóllinn leit sérstaklega til þess við ákvörðun sína að Landsréttur dæmdi Þorstein fyrir manndráp en Héraðsdómur Norðurlands eystra sakfelldi hann aðeins fyrir alvarlega líkamsárás sem leiddi til dauða konunnar. Þorsteinn hafði lengi beitt sambýliskonu sína ofbeldi og taldi dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra því ekki víst hvort hann hefði ætlað að drepa konuna þegar hann varð henni að bana. Landsréttur taldi hins vegar að honum hefði ekki getað dulist að árásin var svo ofsafengin að hún gæti leitt til dauða. Þorsteinn leitaði til Hæstaréttar og bað um að dómstóllinn kvæði upp endanlegan dóm um ákæruna gegn sér. Verjandi hans sagði að verknaðarlýsing í ákæru væri óskýr og því hefði átt að vísa málinu frá. Í það minnsta hefði ekki átt að sakfella hann fyrir manndráp. Auk þess taldi hann að meta þyrfti sönnunargildi matsgerða dómkvaddra manna og annarra sérfræðilegra gagna með hliðsjón af veikindum og þýðingu þeirra fyrir ákvörðun refsingar. Verjandinn sagði augljóst að Landsréttur hefði komist að rangri niðurstöðu með því að sakfella Þorstein Hermann fyrir manndráp en ekki líkamsárás. Það varð til þess að refsing hans þyngdist um fjögur ár. Hæstiréttur sagði að úrlausn málsins kynni að hafa verulega almenna þýðingu og vísaði jafnframt til þess hvernig sakfelling breyttist milli lægri dómstiga.

Feðginin Kristinn og Sonja í fámennan ólympíuhóp

Feðginin Kristinn og Sonja í fámennan ólympíuhóp

Nú þegar Sonja Lí Kristinsdóttir hefur fengið úthlutað sæti í alpagreinum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu er ljóst að hún og faðir hennar bætast í fámennan hóp Íslendinga. Kristinn keppti nefnilega á Vetrarólympíuleikunum árið 2002 í Salt Lake City. Aðeins fáein dæmi eru um það í íslenskri ólympíusögu að börn feti í fótspor foreldra sinna og keppi á Ólympíuleikum. Eftir því sem næst verður komist voru feðgarnir Vilhjálmur Einarsson (þrístökk á ÓL 1956 og 1960) og spjótkastarinn Einar Vilhjálmsson (ÓL 1984, 1988 og 1992) fyrstir Íslendinga til að afreka þetta. Tvö börn Hrafnhildar kepptu líka í sundi Á Sumarólympíuleikunum í Seoul árið 1988 tókst sund-systkinunum Bryndísi og Magnúsi Má Ólafsbörnum svo að feta í fótspor móður sinnar Hrafnhildar Guðmundsdóttur. Hrafnhildur keppti í sundi á Ólympíuleikunum 1964 og 1968. Á Vetrarólympíuleikunum í Albertville árið 1992 náði Örnólfur Valdimarsson svo að leika eftir afrek föður síns, Valdimars Örnólfssonar sem keppti í alpagreinum á leikunum í Cortina árið 1956. Tvennir handboltafeðgar Þá voru tveir úr handboltalandsliði Íslands á Sumarólympíuleikunum í Beijing árið 2008 sem bættust í þennan hóp. Arnór Atlason og Logi Geirsson. Geir Hallsteinsson faðir Loga hafði keppt í handbolta fyrir Ísland á Ólympíuleikunum í München árið 1972 og Atli Hilmarsson faðir Arnórs með handboltalandsliðinu í Los Angeles 1984 og í Seoul 1988. Arnór keppti einmitt líka á tvennum leikum eins og Atli því Arnór var einnig með Íslandi á leikunum í London árið 2012. Nú munu svo feðginin Kristinn Magnússon (ÓL 2002 í Salt Lake City) og Sonja Lí Kristinsdóttir bætast við þennan hóp.

Ekki er hlustað á varúðarorð

Ekki er hlustað á varúðarorð

Frumvarp sem lýtur að tengingu bóta almannatryggingakerfisins við launavísitölu er nú í þinglegri meðferð. Á síðasta þingi voru gerðar margvíslegar athugasemdir við sams konar frumvarp sem lagt var fram á síðasta þingi og náði ekki fram að ganga

Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Ís­landi

Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Ís­landi

Carglass hefur hafið starfsemi á Íslandi og opnað nýtt verkstæði að Dalshrauni 20 í Hafnarfirði. Fyrirtækið er þekkt víða um heim fyrir sérhæfða þjónustu á sviði bílrúða og leggur ríka áherslu á rúðuviðgerðir fremur en skipti þegar það er mögulegt. Markmiðið er að bjóða skilvirka þjónustu sem sparar bæði tíma og kostnað fyrir ökumenn.

Elías fyrir dómi vegna ofbeldis gegn 12 ára dreng – Segir að árás hafi verið gerð á heimili sitt

Elías fyrir dómi vegna ofbeldis gegn 12 ára dreng – Segir að árás hafi verið gerð á heimili sitt

Ath. Greint er frá vitnisburði Elíasar fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun neðar í fréttinni. Aðalmeðferð hófst í morgun í sakamáli gegn rúmlega sextugum verkfræðingi í Reykjanesbæ, Elíasi Georgssyni, sem ákærður er fyrir brot gegn frjálsræði, líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum vegna atviks sem átti sér stað sunnudagskvöldið 26. febrúar árið 2023. Er Elías í ákæru Lesa meira

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússnesk yfirvöld tilkynnt í gær að þau hefðu handtekið einstakling sem er grunaður um að hafa skotið hershöfðingjann Vladimír Alexeyev á föstudag. Maðurinn sem um ræðir virðist hafa komið sér til Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sama dag og árásin var framin þar sem hann var handtekinn. Hann var svo framseldur strax til Rússlands og Lesa meira