Leikfélag Flateyrar frumsýnir á morgun nýtt leikrit eftir Flateyring

Leikfélag Flateyrar frumsýnir á morgun nýtt leikrit eftir Flateyring

Leikfélag Flateyrar frumsýnir á miðvikudaginn nýtt og spennandi íslenskt leikrit eftir tvítuga Flateyringinn Ölmu Sóleyju Önnudóttur Wolf. Sýningin ber heitið ,,Með kjafti og klóm“ og gerist á afskekktum bóndabæ á Íslandi undir lok 18. aldar. Þegar ókunnug hjón koma óvænt á bæinn fer af stað atburðarás sem enginn sér fyrir endann á. Leyndarmál, spenna og […]

Dagur endaði í 79. sæti í sprettgöngunni

Dagur endaði í 79. sæti í sprettgöngunni

Dagur Benediktsson keppti í sinni annarri grein á Vetrarólympíuleikunum í morgun, sprettgöngu. Dagur ræsti 68. í röðinni og endaði í 79. sæti á 3:40.09, 32,72 sekúndum frá Johannes Høsflot Klæbo sem átti hraðasta tímann í undankeppninni. 30 efstu fara áfram í úrslitin sem hefjast 10:35 á RÚV 2 , bæði kvenna- og karlakeppnin. Kristrún Guðnadóttir keppti í undankeppni kvennakeppninnar í morgun og varð í 61. sæti. Þrítugasti maðurinn inn í úrslitin var Svíinn Johan Häggström á 3:18.73 svo Dagur var rúmri 21 sekúndu frá sæti þar. Dagur keppir næst í 10 km göngu á föstudaginn.

Varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar vill í framboð fyrir Framsókn

Varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar vill í framboð fyrir Framsókn

Kolbrún Magnúsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, hefur ákveðið að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn. Þessu greinir hún frá á Facebook-síðu sinni. Kolbrún segist hafa ákveðið að halda sínu pólitíska starfi áfram með Framsókn eftir vandlega íhugun. Þar telji hún reynslu sína, þekkingu og krafta nýtast best. „Þar finn ég nú meiri samhljóm við áherslur og þá nálgun sem Framsókn leggur til grundvallar í bæjarstjórn.“ Hún segir mikilvægt að samfélagið styðji við fjölskyldulíf, öryggi og fjölbreytt tækifæri fyrir börn og ungmenni á sama tíma og vel sé hlúð að eldra fólki og þeim sem þurfi aukinn stuðning í samfélaginu. Aðsend mynd

Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina

Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina

Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hafa troðið upp í hálfleik Ofurskálarinnar á sunnudaginn virðist Benito Antonio Martínez Ocasio, betur þekktur sem Bad Bunny, hafa eytt öllum myndum og myndböndum af Instagram-reikningi sínum. Það eina sem stendur eftir er vefslóð sem vísar á nýjustu plötu tónlistarmannsins og þá hefur hann einnig eytt forsíðumynd sinni af samfélagsmiðlinum X.

Nýtt húðflúr Garnacho vekur athygli – Þetta er merking þess

Nýtt húðflúr Garnacho vekur athygli – Þetta er merking þess

Alejandro Garnacho, leikmaður Chelsea, hefur vakið athygli fyrir nýtt húðflúr sem hann lét nýverið gera. H úðflúrið ber orðið „brave“, sem þýðir „hugrakkur“ á íslensku. Argentínski kantmaðurinn er þekktur fyrir sjálfstraust sitt bæði innan vallar og utan, og virðist húðflúrið endurspegla hugarfar hans. Garnacho hefur á stuttum tíma orðið áberandi í enska boltanum og sýnt Lesa meira

Ætti að kæra Ruben Amorim fyrir meðferðina í heilt ár

Ætti að kæra Ruben Amorim fyrir meðferðina í heilt ár

Gary Lineker hrósaði Kobbie Mainoo í hástert eftir sigur Manchester United á Tottenham og gerði grín að því að miðjumaðurinn ætti jafnvel að íhuga að lögsækja fyrrum stjóra sinn, Ruben Amorim. Mainoo hefur verið færður aftur inn í byrjunarlið United af bráðabirgðastjóranum Michael Carrick og hefur slegið í gegn. Hann var öflugur í 2-0 sigri Lesa meira

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“

Fréttir um að Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar í vor vöktu mikla athygli í gær. Sjá einnig: Ari Edwald verður oddviti Miðflokksins í borginni – „Ég kann að snúa við erfiðri stöðu og veit hvað þarf til þess“ Ari hefur verið Sjálfstæðismaður lengi, en einnig orðaður við Framsókn og Viðreisn og því Lesa meira

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði

Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, svarar Elíasi Blöndal Guðjónssyni, öðrum eiganda vínbúðarinnar Santé, fullum hálsi í aðsendri grein á Vísi. Elías og Lára hafa staðið í ritdeilu undanfarna daga, sem hófst þegar Lára og Valgerður Rúnarsdóttir skrifuðu grein á Vísi á sunnudag þar sem þær líktu stjórnmálamanni sem vill frjálsari áfengissölu við Lesa meira

Boða nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi

Boða nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi

Nýtt framboð býður fram lista í Grímsnes- og Grafningshreppi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Framboðið ber nafnið Betri sveit – fyrir okkur öll. Það er að hluta sprottið upp úr deilum innan sveitarfélagsins milli núverandi meirihluta í hreppstjórn og íbúa í frístundabyggð. Í tilkynningu segir að markmiðið með framboðinu sé að stjórnsýsla sveitarfélagsins verði opnari og að stuðlað verði að sanngjörnum ákvörðunum sem byggi ætíð á hagsmunum samfélagsins í heild. „Framboðið Betri sveit vill aukið samráð. Vilja íbúa má meðal annars kanna með ráðgefandi íbúakosningu. Markmiðið skal ætíð vera að efla með markvissum hætti lýðræðisleg vinnubrögð í sveitarfélaginu, verja fé til framkvæmda eftir forgangsröðun íbúanna sjálfra og með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.“ Andrés Bertelsson verður oddviti listans. Andrés segir að hópurinn sem standi að framboðinu hafi að hluta spunnist út frá hópi fólks sem búi í frístundahúsum en þroskast ansi hratt í þá átt að sækjast eftir íbúajafnrétti og íbúalýðræði; krafan sé að komið sé eins fram við íbúa svæðisins. Hann segir að framboðið snúist í raun um jafnrétti og telur að í litlu sveitarfélagi sé einfalt að leita álits allra íbúa.

Öllum ungmennum á Suðurnesjum boðið á skyndihjálparnámskeið

Öllum ungmennum á Suðurnesjum boðið á skyndihjálparnámskeið

Rauði krossinn býður öllum ungmennum á aldrinum 12–16 ára sem búsett eru á Suðurnesjum á skyndihjálparnámskeiðið Bjargvættir – viðnámsþróttur. Námskeiðin eru 3-4 klukkustundir að lengd og verða haldin reglulega næstu vikur og mánuði. Þátttaka er ókeypis en krefst skráningar. Kennsla er í höndum reyndra leiðbeinenda á vegum Rauða krossins í skyndihjálp. „Okkur hjá Rauða krossinum Lesa meira

Kristrún ekki áfram en upp um þrettán sæti frá síðustu ÓL

Kristrún ekki áfram en upp um þrettán sæti frá síðustu ÓL

Alls voru 89 keppendur sem hófu keppni í undankeppni sprettgöngunnar á skíðagöngusvæðinu í Tesero í dag en ljóst að aðeins þriðjungur keppenda, eða 30 efstu kæmust í úrslit. Hringurinn var 1,5 km og Kristrún gaf allt í eins og hún hafði sagst ætla að gera. Hún kom í mark á 4:09,30 mín., og gekk vel seinni partinn, því hún var í 64. sæti eftir 0,8 km, en endaði í 61. sæti þegar allir voru komnir í mark. Hún komst því ekki áfram í úrslit en gerði þó mun betur en á síðustu Ólympíuleikum í Beijing í Kína fyrir fjórum árum. Þar endaði hún í 74. sæti og því hækkaði Kristrún sig upp um þrettán sæti í sprettgöngunni á milli leika. Svíar röðuðu sér í þrjú efstu sætin í undankeppni sprettgöngunnar í dag. Linn Svahn átti besta tímann eða 3:26,01 mín. Kristrún var því 33,09 sek. frá tíma hennar en 13,02 sek. frá 30. sæti, síðasta sætinu inn í úrslitin sem fara fram síðar í dag. Kristrún keppir næst í 10 km skíðagöngu á fimmtudaginn.