Stórsigur flokks Takaichi forsætisráðherra staðfestur

Stórsigur flokks Takaichi forsætisráðherra staðfestur

Stórsigur flokks japanska forsætisráðherrans Sanae Takaichi í þingkosningum um helgina var staðfestur í morgun. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn fær tvo þriðju sæta í neðri deild þingsins eða 315 þingmenn af 465, samkvæmt tölum landskjörstjórnar. Takaichi boðaði til skyndikosninga snemma árs, fáeinum mánuðum eftir að hún varð forsætisráðherra, fyrst japanskra kvenna. Henni hefur tekist það markmið að ná meirihluta á þinginu til að ná fram stefnumiðum sínum á borð við skattalækkanir, aukin opinber útgjöld og nýja varnarstefnu. Útgönguspár og fyrstu tölur bentu til sigurs flokksins, sem hefur verið við völd nánast óslitið áratugum saman. Fylgið hefur dalað talsvert síðustu ár vegna ýmissa innanmeina flokksins og spillingarmála sem hafa skekið japanskt samfélag. Tveir forverar Sanae Takaichi í leiðtoga- og forsætisráðherrastólnum þurftu að víkja úr embætti vegna spillingar.

Bandarískir öldungadeildarþingmenn: Brýnt að endurreisa traustið milli landanna tveggja

Bandarískir öldungadeildarþingmenn: Brýnt að endurreisa traustið milli landanna tveggja

Fjórir bandarískir öldungadeildarþingmenn sem funduðu með grænlensku landstjórninni um helgina eru á einu máli um að virða beri sjálfsákvörðunarrétt landsins og fullveldi danska konungdæmsins. KNR fjallaði um málið. Þingmennirnir sögðu Grænland og Bandaríkin vera samherja á mörgum sviðum og því væri nauðsynlegt að endurreisa traustið sem þvarr eftir hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku Grænlands með valdi. Angus King, óháður þingmaður fyrir Maine, sagði á sameiginlegum blaðamannafundi að meirihluti Bandaríkjaþings væri á sama máli. Demókratarnir Gary Peters og Maggie Hassan, frá Michigan og New Hampshire, samsinntu því. Repúblikanaþingmaðurinn Lisa Murkowski hefur látið málefni Grænlands sig miklu varða og kvaðst miður sín vegna hótananna og þess uggs sem hann hefði kveikt í brjósti Grænlendinga. Murkowski, sem er þingmaður Alaska, sagði mikla hagsmuni felast í samstarfi ríkja við Atlantshaf sem byggði á samtali og trausti og áréttaði mikilvægi þingsins við allar ákvarðanatökur, hvað svo sem forsetinn segði. Angus King sagðist aðspurður ekki vita hvernig störfum þriggja ríkja nefndar um varnir Grænlands miðaði. Aðeins einn eða tveir fundir væru að baki og mikið verk fram undan. Hann álítur þó að samtalið beri ríkulegan ávöxt og þótt útilokað væri að vita hvort Trump snerist hugur hlyti það versta að vera að baki. Murkowski sagði fjölda samflokksmanna hennar ekki vilja rugga báti Trumps en margir hafi trúað henni fyrir því að forsetinn hefði farið yfir strikið varðandi yfirtökuna á Grænlandi. Málefni Grænlands hafa verið í brennidepli alþjóðlegrar umræðu frá því Trump ámámálgaði yfirtöku landsins í fyrra og enn frekar eftir að hann kvaðst ekki útloka beitingu hervalds snemma árs. Frakkar og Kanadamenn opnuðu nýlega ræðismannsskrifstofur í Nuuk og hafa lýst fullum stuðningi við Grænland í deilunni við Bandaríkin.

Heimild til nýtingar séreignasparnaðar fest í sessi

Heimild til nýtingar séreignasparnaðar fest í sessi

Lagt er til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól húsnæðislána verði gerð varanleg í drögum að frumvarpi sem eru í samráðsgátt stjórnvalda . Hún hefur síðastliðin ár alltaf verið framlengd eitt ár í senn. Sú breyting er gerð að einstaklingum verður framvegis leyft að nýta heimildina í tíu ár, eða að hámarki samtals 120 mánuði. Lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar til greiðslu húsnæðislána voru sett til bráðabirgða árið 2014 til að bregðast við skuldavanda heimilanna og tugir þúsunda hafa nýtt sér þá leið. Hámarksfjárhæð til ráðstöfunar séreignasparnaðar hvers einstaklings verði 500 þúsund krónur, sem hækki árlega í samræmi við vísitölu neysluverðs, í fyrsta sinn 1. janúar 2027. Sérstakt lægra viðmið fyrir hjón eða sambúðarfólk er ekki að finna í frumvarpinu. Að öðru leyti er að stærstum hluta gert ráð fyrir að áfram verði sambærileg skilyrði um nýtingu sparnaðarins og gilt hafa undanfarin ár. Ráðgert er að heimildin gangi strax í gildi en að fólk geti sótt um nýtingu hennar afturvirkt til 1. janúar 2026. Jafnframt eru boðaðar breytingar á lögum um stuðning við kaup á fyrstu íbúð sem ætlað er að samræma skilyrði úrræðanna tveggja og auðvelda framkvæmdina. Frumvarpið er hluti fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var í lok október.

Hafnbann á olíu tekið að bíta á ferðir erlendra flugfélaga

Hafnbann á olíu tekið að bíta á ferðir erlendra flugfélaga

Bandaríkin hafa sett hafnbann á olíuflutninga til Kúbu sem hefur orðið til þess að erlend flugfélög hafa dregið úr ferðum þangað. Eldsneyti fyrir flugvélar er að verða uppurið vegna hafnbannsins og það er tekið að hafa áhrif á ferðir þeirra rúmlega tugs erlendu flugfélaga sem til Kúbu fljúga. Mörg þeirra eru tekin að sækja eldsneyti annarra eyja í Karíbahafi. Bandaríkjastjórn hefur hótað hverju því landi háum tollum sem flytur olíu til Kúbu með það að markmiði að koma þarlendum stjórnvöldum að samningaborðinu varðandi stjórnarskipti. Háttsettir stjórnarliðar hafa sagt núverandi stjórnvöld ógn við öryggi Bandaríkjanna. Flugfélagið Air Canada ætlar að hætta öllum ferðum til landsins og tilkynnti í kvöld að það hygðist flytja þrjú þúsund farþega þaðan. Kanadamenn sækja mikið í strandlífið á Kúbu yfir vetrarmánuðina og koma ferðamanna er mikilvæg fjárhag ríkisins. Mörgum bensínstöðvum var lokað á mánudag og stjórnvöld hafa boðað skömmtun. Claudia Sheinbaum Mexíkóforseti segir stefnu Bandaríkjanna afar ósanngjarna og hefur sagst leita diplómatískra leiða til að útvega Kúbverjum olíu án þess að tíunda það frekar. Mexíkó sendi 800 tonn af neyðarbirgðum til Kúbu á sunnudag.

Fjarðarheiði lokað vegna veðurs og ófærðar

Fjarðarheiði lokað vegna veðurs og ófærðar

Fjarðarheiði hefur verið lokað vegna ófærðar og veðurs samkvæmt tilkynningu á vef Vegagerðarinnar . Reynt verður að opna á hefðbundnum tíma í fyrramálið en það eru erfiðar aðstæður til aksturs um heiðina, blint og ökumenn hafa fest bíla sína. Hálkublettir eru á Mosfellsheiði og í Kjósarskarði. Krapi er á Fagradal, Jökuldal og Hliðarvegi en hálka er víða. Ófært er á Vatnsskarði eystra, Öxi og Breiðdalsheiði. Þæfingur eða jeppafæri er á Dynjandisheiði og hálka eða hálkublettir á flestum vegum á Vestfjörðum og Norðausturlandi. Þæfingur er á Vopnafjarðarheiði en krapi er á, Hófaskarði, Hólaheiði og Raufarhafnarvegi og eitthvað um snjóþekju á Háreksstaðaleið. Hálka og éljagangur er á Öxnadalsheiði og víðar á Norðurlandi, krapi og éljagangur er í Almenningum og hvasst, og eitthvað er um hálkubletti á vegum.

Tveir fluttir á á slysadeild eftir árekstur nærri Sprengisandi

Tveir fluttir á á slysadeild eftir árekstur nærri Sprengisandi

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir árekstur tveggja bíla nærri Sprengisandi í Reykjavík. Þeir slösuðu voru í öðrum bílnum en ekki þótti ástæða til að flytja þá sem í hinum voru. Varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir ekki vitað um áverka en telur mennina ekki mikið meidda. Einn dælubíll og tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang. RÚV / Ragnar Visage Fréttin var uppfærð.

Tveir bílar brunnu í Breiðholti

Tveir bílar brunnu í Breiðholti

Eldur kviknaði í bifreið við fjölbýlishús í Bakkahverfinu í Breiðholti í kvöld. Slökkviliði barst tilkynning um eldinn um klukkan ellefu og þá voru tveir dælubílar sendir á vettvang. Eldurinn hafði borist í annan bíl að sögn varðstjóra sem segir slökkvistarfi nánast hafa lokið rétt fyrir miðnættið. Þá var annar dælubíllinn sendur til baka. Óttast var að eldurinn bærist í blokkina en svo fór ekki. Lögregla tekur við rannsókn brunans. RÚV / Ragnar Visage

„Þarf maður að fara að finna ein­hverja nýja fjöru?“

„Þarf maður að fara að finna ein­hverja nýja fjöru?“

Eitt mesta landrof í manna minnum hefur orðið í Reynisfjöru í Mýrdal. Landeigandi segir óvíst hvort ásýndin sé breytt til framtíðar. Gjörbreytt landslag blasir nú þar við ferðamönnum en í stað svörtu fjörunnar sem hefur dregið marga víða að blasa nú við steinar úti um allt. Þá hefur sjórinn náð að grafa sig inn í fjöruna og myndað nokkurra metra háan vegg.

Skopmyndir eftir gervigreind skemmtilegt æði en varasamt

Skopmyndir eftir gervigreind skemmtilegt æði en varasamt

Margir hafa síðustu daga beðið gervigreindina ChatGPT um að búa til skopmynd af sér byggða á öllu sem hún veit um viðkomandi. Þá grípur hún tækifærið og biður um fleiri upplýsingar, til dæmis ljósmyndir, með þeim rökum að skopmyndin verði nákvæmari. Þar lætur hún ekki staðar numið heldur vill hún líka vita við hvað fólk starfar og helstu áhugamál. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, hvetur til árvekni og að fólk hugsi um hvað fyrirtækið sé að gera við þessar upplýsingar. „Það sem við höfum séð er að oft eru upplýsingar nýttar, í það sem fólk heldur að sé í einhverjum leik. En þessi fyrirtæki eru ekki að leika sér, þau eru í harðsvíruðum viðskiptum. Þau eru að nota þessar upplýsingar til einhvers,“ segir Helga.

Hlé í Høiby-máli vegna nýrra brota

Hlé í Høiby-máli vegna nýrra brota

Hlé var gert á réttarhöldunum yfir Mariusi Borg Høiby í dag svo lögregla gæti yfirheyrt hann vegna þeirra meintu brota sem hann er grunaður um að hafa framið á sunnudaginn fyrir rúmri viku þegar lögregla handtók hann og fékk hann daginn eftir úrskurðaðan í gæsluvarðhald.