Ráða hagsmunavörð í Washington
Íslensk stjórnvöld hafa samið við lögfræðistofuna og ráðgjafarfyrirtækið Brownstein Hyatt Farber Schreck um að annast hagsmunavörslu Íslands gagnvart bandarískum stjórnvöldum.
Íslensk stjórnvöld hafa samið við lögfræðistofuna og ráðgjafarfyrirtækið Brownstein Hyatt Farber Schreck um að annast hagsmunavörslu Íslands gagnvart bandarískum stjórnvöldum.
Þungir hafstraumar í þrálátum austanáttum hafa á fáum dögum gjörbreytt öllu umhverfi í Reynisfjöru í Mýrdal. Tugum metra lands hefur skolað út og hár rofbakki myndast ofan við flæðarmál þar sem þungir steinar rúlla um í róti aldnanna.
Eva Bryndís Ágústsdóttir útskrifaðist með BA-gráðu í fornleifafræði í fyrra og hefur starfað í faginu síðan. Nú er hún í meistaranámi í Noregi þar sem hún leggur sérstaka áherslu á kennilega fornleifafræði
Jarðskjálftahrinan við Eldey á Reykjaneshrygg færðist í aukana á ný á þriðja tímanum í nótt eftir að nokkuð dró úr virkninni undir miðnætti. Nokkrir skjálftar af stærðinni tveir til þrír mældust þegar leið á nóttina og í kjölfarið fylgdu smærri eftirskjálftar. Engin merki eru um gosóróa að sögn Ingibjargar Andreu Bergþórsdóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands , sem segir allt benda til að á ferðinni sé hefðbundin skjálftavirkni á flekaskilum. Frá því um hádegisbil í gær hafa mælst yfir þrjú hundruð jarðskjálftar. Ingibjörg segir sérfræðinga Veðurstofunnar fylgjast náið með framvindu mála. Aukin spenna hefur verið á þessum slóðum frá því eldsumbrot hófust á Reykjanesskaga fyrir um fimm árum. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur sagði í kvöldfréttum sjónvarps ástæðu hrinunnar að hluta til vera vegna spennulosunar á Reykjanesskaga.
Jarðskjálftahrinan við Eldey á Reykjaneshrygg færðist í aukana á ný á þriðja tímanum í nótt eftir að nokkuð dró úr virkninni undir miðnætti. Nokkrir skjálftar af stærðinni tveir til þrír mældust þegar leið á nóttina og í kjölfarið fylgdu smærri eftirskjálftar. Engin merki eru um gosóróa að sögn Ingibjargar Andreu Bergþórsdóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands , sem segir allt benda til að á ferðinni sé hefðbundin skjálftavirkni á flekaskilum. Frá því um hádegisbil í gær hafa mælst yfir þrjú hundruð jarðskjálftar. Ingibjörg segir sérfræðinga Veðurstofunnar fylgjast náið með framvindu mála. Aukin spenna hefur verið á þessum slóðum frá því eldsumbrot hófust á Reykjanesskaga fyrir um fimm árum. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur sagði í kvöldfréttum sjónvarps ástæðu hrinunnar að hluta til vera vegna spennulosunar á Reykjanesskaga.
Geimferðafyrirtækið SpaceX hefur ákveðið að leggja áætlanir um mannaðar ferðir til og landnám reikistjörnunnar Mars til hliðar og einblína frekar á að koma upp byggð á tunglinu. Aðaleigandinn og stofnandinn Elon Musk tilkynnti þetta í gær en bætti við að ekki hefði verið hætt við Marsferðir og uppbyggingu þar. Huga megi að því eftir fimm til sjö ár. SpaceX hefur notið mikillar velgengni með samvinnu við NASA en gagnrýnendur hafa sagt landnámsdraumana á Mars fullmetnaðargjarna. Yfirlýsing Musks er í takti við hugarfarsbreytingu Donalds Trump forseta, sem telur orðið útlokað að senda menn til Mars fyrir lok kjörtímabilsins öfugt við það sem hann áður boðaði. „Fyrir þau sem ekki vita hefur SpaceX ákveðið að einblína á byggingu sjálfbærrar borgar á tunglinu enda gæti það tekist á innan við áratug,“ skrifaði Musk á samfélagsmiðilinn X. Hann sagði uppbyggingu á Mars hins vegar geta tekið meira en tvo áratugi. „Vandkvæðin liggja í því að eingöngu er hægt að ferðast til Mars þegar reikistjörnurnar standast á, sem gerist á 26 mánaða fresti, hins vegar má skreppa til tunglsins á tíu daga fresti,“ skrifaði Musk. Bandaríska geimferðastofnunin stefnir á að senda mannað geimfar, Artemis 3, til tunglsins fyrir mitt næsta ár, sem sérfræðingar segja geta dregist því tungllendingarferja SpaceX er ekki nándar nærri tilbúin.
Sjóhaukarnir frá Seattle sýndu afburðavarnarleik og sigruðu Ættjarðarvinina frá Nýja-Englandi 29 - 13 í Ofurskálarleik NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta. Leikurinn var haldinn á Levi's-leikvanginum í Santa Clara í Kaliforníu og er vinsælasti íþróttaviðburður í Bandaríkjunum og þótt víðar væri leitað. Íslendingar hafa fylgst spenntir með og nokkrir veitingastaðir fengu heimild til lengri opnunartíma svo fólk gæti úðað í sig kjúklingavængjum og hvatt sitt lið til dáða. Innherjinn AJ Barner skoraði snertimark fyrir Seattle eftir sendingu frá leikstjórnandanum Sam Darnol, sem skilar sex stigum. Auk þess sló Jason Myers Ofurskálamet með því að skora fimm mörk. Með sigrinum tryggði liðið sér hinn eftirsótta Vince Lombardi-bikar öðru sinni, og í fyrsta skipti í tólf ár. Hinn 23 ára Drake Maye hafði dreymt um að verða yngsti leikstjórnandi sögunnar til að hampa bikarnum enda leiddi hann New England Patriots af öryggi gegnum tímabilið. Draumurinn breyttist í martröð því Maye tapaði boltanum sex sinnum og tókst aldrei að knýja sóknina áfram svo nokkru næmi. Liðið þurfti líka oft að sparka boltanum frá sér sem gaf Seahawks sífellt tækifæri til að auka á forystuna. Staðan var 9 - 0 í hálfleik. Undir lok leiks tókst Rhamondre Stevenson að bæta stöðuna með snertimarki eftir sendingu frá Maye. En úrslitin voru ráðin, Seattle Seahawks sigruðu 29 - 13, eins og áður sagði. Áhorfendur virtust skemmta sér hið besta og ekki síður í hálfleik þegar Grammy-verðlaunahafinn Benito Ocasio eða Bad Bunny frá Púertó Ríkó tróð upp. Hið sama er ekki hægt að segja um Donald Trump forseta sem sagði framkomu tónlistarmannsins hreina lítilsvirðingu við þjóðina. „Þetta var gersamlega hræðilegt,“ skrifaði Donald Trump á Truth Social. Bad Bunny söng og talaði á spænsku og hyllti Púertó Ríkó sem er sérstakt sambandssvæði innan Bandaríkjanna. „Enginn skilur orð af því sem maðurinn er að segja,“ skrifaði Trump, þótt opinberar tölur sýni að 41 milljón Bandaríkjamanna tali spænsku. Fyrir viku hlaut Bad Bunny Grammy-verðlaunin fyrir plötu ársins, Debi Tirar Mas Fotos. Það var í fyrsta sinn sem plata sungin á spænsku fær verðlaun í þessum flokki. Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi NFL fyrir að velja Bad Bunny og sagði hann aðeins munu dreifa hatri en fullyrti jafnframt að hann vissi ekkert hver hann væri. Tónlistarmaðurinn hefur lengi gagnrýnt stefnu Trumps, meðal annars í innflytjendamálum. Hann hefur einnig verið einarður talsmaður hinsegin fólks og heimalandsins Púertó Ríkó. Sigurvegarar síðustu tíu ára 2026: Seattle Seahawks 29 - New England Patriots 13 2025: Philadelphia Eagles 40 - Kansas City Chiefs 22 2024: Kansas City Chiefs 25 – San Francisco 49ers 22 í framlengingu 2023: Kansas City Chiefs 38 – Philadelphia Eagles 35 2022: Los Angeles Rams 23 – Cincinnati Bengals 20 2021: Tampa Bay Buccaneers 31 - Kansas City Chiefs 9 2020: Kansas City Chiefs 31 - San Francisco 49ers 20 2019: New England Patriots 13 - Los Angeles Rams 3 2018: Philadelphia Eagles 41 - New England Patriots 33 2017: New England Patriots 34 – Atlanta Falcons 28 í framlengingu Eftirtalin lið hafa sigrað oftast: 6 sinnum: Pittsburgh Steelers og New England Patriots 5 sinnum: San Francisco 49ers og Dallas Cowboys 4 sinnum Kansas City Chiefs, Green Bay Packers og New York Giants
Sjóhaukarnir frá Seattle sýndu afburðavarnarleik og sigruðu Ættjarðarvinina frá Nýja-Englandi 29 - 13 í Ofurskálarleik NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta. Leikurinn var haldinn á Levi's-leikvanginum í Santa Clara í Kaliforníu og er vinsælasti íþróttaviðburður í Bandaríkjunum og þótt víðar væri leitað. Íslendingar hafa fylgst spenntir með og nokkrir veitingastaðir fengu heimild til lengri opnunartíma svo fólk gæti úðað í sig kjúklingavængjum og hvatt sitt lið til dáða. Innherjinn AJ Barner skoraði snertimark fyrir Seattle eftir sendingu frá leikstjórnandanum Sam Darnol, sem skilar sex stigum. Auk þess sló Jason Myers Ofurskálamet með því að skora fimm mörk. Með sigrinum tryggði liðið sér hinn eftirsótta Vince Lombardi-bikar öðru sinni, og í fyrsta skipti í tólf ár. Hinn 23 ára Drake Maye hafði dreymt um að verða yngsti leikstjórnandi sögunnar til að hampa bikarnum enda leiddi hann New England Patriots af öryggi gegnum tímabilið. Draumurinn breyttist í martröð því Maye tapaði boltanum sex sinnum og tókst aldrei að knýja sóknina áfram svo nokkru næmi. Liðið þurfti líka oft að sparka boltanum frá sér sem gaf Seahawks sífellt tækifæri til að auka á forystuna. Staðan var 9 - 0 í hálfleik. Undir lok leiks tókst Rhamondre Stevenson að bæta stöðuna með snertimarki eftir sendingu frá Maye. En úrslitin voru ráðin, Seattle Seahawks sigruðu 29 - 13, eins og áður sagði. Áhorfendur virtust skemmta sér hið besta og ekki síður í hálfleik þegar Grammy-verðlaunahafinn Benito Ocasio eða Bad Bunny frá Púertó Ríkó tróð upp. Hið sama er ekki hægt að segja um Donald Trump forseta sem sagði framkomu tónlistarmannsins hreina lítilsvirðingu við þjóðina. „Þetta var gersamlega hræðilegt,“ skrifaði Donald Trump á Truth Social. Bad Bunny söng og talaði á spænsku og hyllti Púertó Ríkó sem er sérstakt sambandssvæði innan Bandaríkjanna. „Enginn skilur orð af því sem maðurinn er að segja,“ skrifaði Trump, þótt opinberar tölur sýni að 41 milljón Bandaríkjamanna tali spænsku. Á stórum skjá að baki Bad Bunny mátti sjá orðin: Það eina sem er sterkara en hatur er ást. Fyrir viku hlaut Bad Bunny Grammy-verðlaunin fyrir plötu ársins, Debi Tirar Mas Fotos. Það var í fyrsta sinn sem plata sungin á spænsku fær verðlaun í þessum flokki. Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi NFL fyrir að velja Bad Bunny og sagði hann aðeins munu dreifa hatri en fullyrti jafnframt að hann vissi ekkert hver hann væri. Tónlistarmaðurinn hefur lengi gagnrýnt stefnu Trumps, meðal annars í innflytjendamálum. Hann hefur einnig verið einarður talsmaður hinsegin fólks og heimalandsins Púertó Ríkó. Sigurvegarar síðustu tíu ára 2026: Seattle Seahawks 29 - New England Patriots 13 2025: Philadelphia Eagles 40 - Kansas City Chiefs 22 2024: Kansas City Chiefs 25 – San Francisco 49ers 22 í framlengingu 2023: Kansas City Chiefs 38 – Philadelphia Eagles 35 2022: Los Angeles Rams 23 – Cincinnati Bengals 20 2021: Tampa Bay Buccaneers 31 - Kansas City Chiefs 9 2020: Kansas City Chiefs 31 - San Francisco 49ers 20 2019: New England Patriots 13 - Los Angeles Rams 3 2018: Philadelphia Eagles 41 - New England Patriots 33 2017: New England Patriots 34 – Atlanta Falcons 28 í framlengingu Eftirtalin lið hafa sigrað oftast: 6 sinnum: Pittsburgh Steelers og New England Patriots 5 sinnum: San Francisco 49ers og Dallas Cowboys 4 sinnum Kansas City Chiefs, Green Bay Packers og New York Giants
Rapparinn og söngvarinn Bad Bunny frá Púertó Ríkó var með eftirminnilega sýningu í hálfleik á Super Bowl LX milli New England Patriots og Seattle Seahawks í nótt.
Seattle Seahawks er NFL-meistari eftir stórsigur á New England Patriots í Super Bowl í Santa Clara í Kaliforníu í nótt. Þetta er í annað skiptið sem Lombardi-bikarinn fer til Seattle og í fyrsta sinn í tólf ár.
Seattle Seahawks er NFL-meistari eftir stórsigur á New England Patriots í Super Bowl í Santa Clara í Kaliforníu í nótt. Þetta er í annað skiptið sem Lombardi-bikarinn fer til Seattle og í fyrsta sinn í tólf ár.
Þingnefnd um málefni Norður-Írlands krefst þess að breska ríkisstjórnin ljóstri upp nafni flugumanns breska hersins innan Írska lýðveldishersins, sem undir dulnefninu Stakeknife leiddi dauðasveit sem myrti og pyntaði tugi meinta svikara og uppljóstrara á tímum óaldarinnar í landinu. Hann rændi einnig fimmtán manns. Breska leyniþjónustan MI5 og herinn eru sögð hafa hylmt yfir ódæði mannsins áratugum saman og ekki haft stjórn á athæfi hans. Í desember kom út skýrsla byggð á níu ára rannsókn lögreglu undir heitinu Operation Kenova, sem leiddi í ljós að Stakeknife hafði gerst sekur um verstu mögulegu glæpi. Nefndin segir það almenningi verulega í hag að afhjúpa hver maðurinn er auk þess sem útsendarar sem rjúfi öll mörk geti ekki byggt upp traust um gervallt Norður-Írland í skjóli nafnleyndar. Grunur leikur á að útsendarinn hafi verið Freddie Scappaticci frá Belfast á Norður-Írlandi. Hann flúði þaðan 2003 þegar ásakanir um að hann væri Stakeknife fóru á flug. Hann viðurkenndi aðild að Írska lýðveldishernum en þvertók fyrir samstarf við bresku leyniþjónustuna. Scappaticci lést fyrir þremur árum, 77 ára að aldri. Höfundar Kenova-skýrslunnar hafa einnig hvatt stjórnvöld til að staðfesta hver Stakeknife var og fagna viðhorfi þingnefndarinnar. Átökin á Norður-Írlandi, í daglegu tali kölluð Vandræðin eða The Troubles, snerust í stuttu máli um hvort landið ætti að sameinast írska lýðveldinu eins og kaþólikkar vildu eða vera áfram undir breskri stjórn að kröfu mótmælenda. Söguna má rekja allt aftur til þriðja áratugs síðustu aldar en Vandræðin sjálf stóðu frá því seint á 7. áratugnum og til 1998 þegar þeim lauk að mestu með friðarsamkomulagi kenndu við föstudaginn langa.
Minnst níu manns fórust þegar gömul íbúðarbygging hrundi í Bab al-Tabbaneh, fátækasta hverfi líbönsku hafnarborgarinnar Trípólí. Talið er að um 22 hafi verið í tólf íbúðum hússins þegar það hrundi. Að minnsta kosti sex hefur verið bjargað lifandi undan rústunum og fluttir á sjúkrahús. Björgunarsveitir leita enn að eftirlifendum. Nærliggjandi hús voru rýmd af ótta við hrun. Borgarstjórinn Hamid Karimeh segir þúsundir íbúa Trípólí í hættu vegna fjölda óöruggra bygginga; ástandið væri verra en yfirvöld réðu við. Staða mála í Trípólí er ekki einsdæmi í Líbanon, um allt land standa byggingar sem standast engar reglugerðir. Margar þeirra voru reistar á árum borgarstríðsins 1975 til 1990 og voru iðulega hækkaðar í leyfisleysi. Ríkisstjórnin hefur boðið íbúum ónýtra húsa og íbúða styrki til að koma sér öðru þaki yfir höfuðið.
Mona Juul hefur sagt af sér sem sendiherra Noregs í Jórdaníu og Írak vegna tengsla við fjárfestinn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Utanríkisráðherrann Espen Barth Eide tilkynnti þetta í gær. Eide segir að samskipti Juul við Epstein sýni alvarlegan dómgreindarskort. Allt bendi til að tengsl Juul og eiginmannsins Terje Rød-Larsen við Epstein hafi verið umfangsmikil og náin. Eide kveðst brugðið yfir mörgu sem sjá má í skjölunum. „Erfitt verður að byggja upp það traust sem embætti hennar krefst,“ sagði Eide við NRK. Juul var leyst frá skyldum sínum í síðustu viku meðan ráðuneytið rannsakaði eðli samskipta hennar og Epsteins og svipt öryggisheimildum sínum. Ráðherrann kveðst ekki vilja ræða mál Juul í hörgul fyrr en hún hefur lagt spilin á borðið, sem líklega gerist í vikunni. Eide segir Epstein-málið allt skaðlegt fyrir orðspor Noregs en að hann fyrir sitt leyti ætli að tryggja að allt sem tengist ráðuneyti hans verði uppi á borðum. Hann áréttar að málið teygi anga sína víðar innan stjórnmálanna, Nóbelsnefndarinnar og alla leið inn í konungshirðina. Leiðtogar þvert á flokka hafa kvatt til ítarlegrar, óháðrar rannsóknar á tengslum Epsteins við háttsetta Norðmenn.
Útlit er fyrir að stjórnarflokkar Japans, undir forystu Sanae Takaichi forsætisráðherra, hafi náð miklum meirihluta í neðri deild japanska þingsins. Samkvæmt nýjustu tölum hefur samsteypustjórn Takaichi unnið 352 af 465 sætum þingsins og þar af hefur flokkur hennar unnið 316 sæti.
Franski fótboltamaðurinn Jérémy Jacquet meiddist illa í fyrsta leiknum sínum eftir að hann samdi við enska stórliðið Liverpool. Jacquet kemur ekki til Liverpool fyrr en í sumar en hjálpar franska liðinu Rennes ekki mikið á næstunni.