IWF: sjókvíaeldisfyrirtækin hafa „keypt“ stjórnmálamenn

IWF: sjókvíaeldisfyrirtækin hafa „keypt“ stjórnmálamenn

Íslenski náttúruverndarsjóðurinn, Icelandic Wildlife Fund, heldur því fram að sjókvíaeldisfyrirtækin hafi „keypt“ stjórnmálamenn og segir að og tilgangur þeirra kaupa sé „að fá stuðning fyrir eins lina löggjöf og hægt er um þennan skaðlega iðnað.“ Þetta kemur fram í færslu á Facebook síðu samtakanna. Ritstjóri vefsíðurinnar er Jón Kaldal fyrrv. ritstjóri Fréttablaðsins. Farið var fram […]

Rannsókn á banaslysi á Miklubraut í fullum gangi: „Myndin að teiknast upp“

Rannsókn á banaslysi á Miklubraut í fullum gangi: „Myndin að teiknast upp“

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur enn að því að taka skýrslur af vitnum og fara yfir myndefni vegna banaslyss sem varð á Miklubraut í Reykjavík á fimmtudagskvöld. Alvarlegt umferðarslys varð á Miklubraut í Reykjavík rétt fyrir miðnætti á fimmtudagskvöld þegar bíll, sem ekið var austur Miklubraut, hafnaði á stólpa Vegagerðarinnar, til móts við hús Hjálpræðishersins. Tveir sautján ára drengir voru í bílnum og annar þeirra lést. Hann var farþegi í bílnum. „Við erum með tvo menn sem eru að rannsaka þetta hjá mér og svo er tæknideildin líka að rannsaka sinn hluta. Rannsóknin gengur bara ágætlega á þessu hörmulega slysi,“ segir Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Gríðarmikil rannsókn í kringum þetta slys“ Ökumaðurinn slasaðist töluvert og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hann verið útskrifaður af spítala. Guðmundur Páll segir að verið sé að taka skýrslur af vitnum og fara yfir myndefni sem lögreglu hefur borist. „Myndin er að teiknast upp. Við erum að skoða allar sviðsmyndir hvað gerðist og meðal annars það hvort þetta hafi verið hraðakstur eða ekki. En það á bara eftir að koma í ljós,“ segir Guðmundur Páll. Rannsóknin taki einhverjar vikur í viðbót. „Það á eftir gera helling í viðbót. Það á að skoða og rannsaka bílinn og annað. Þetta er gríðarmikil rannsókn í kringum þetta slys.“

Að verða læs fyrir lífið

Að verða læs fyrir lífið

Að undanförnu hefur verið hávær umræða um hvernig bregðast eigi við hnignandi lesskilningi meðal íslenskra grunnskólanema. Þessi umræða hefur beinst einhliða að lestrarkennslu á yngsta stigi grunnskóla en skilað að mestu leyti auðu varðandi kennslu á miðstigi og unglingastigi.

Taka fram úr Arsenal í baráttunni

Taka fram úr Arsenal í baráttunni

Chelsea er á undan Arsenal í baráttunni um Julian Alvarez hjá Atletico Madrid, samkvæmt miðlum í heimalandi hans, Argentínu. Framherjinn hefur verið orðaður við endurkomu til Englands, aðallega Arsenal, undanfarið eftir að hafa heillað á Spáni. Chelsea er þó sagt vinna í því að fá hann í sumar. Talið er að samtal Chelsea við Atletico Lesa meira