Sjö slökkviliðsstöðvar sem ein liðsheild

Sjö slökkviliðsstöðvar sem ein liðsheild

Umdæmi Brunavarna Árnessýslu liggur frá Bláfjallaafleggjara að Þjórsá, að Kerlingafjöllum niður að sjó til Þorlákshafnar. Sjö slökkviðliðsstöðvar í átta sveitafélögum vinna sem ein liðsheild. „Við lítum á Selfoss sem miðjustöð með mesta búnaðinn og sendum mannskap á milli sem stuðning í útköllum“ segir Pétur Pétursson slökkviliðsstjóri. Æfingar eru samræmdar og áhersla lögð á að starfsmenn séu færir á allan tiltækan búnað og geti gripið í hann hvar sem er. „Hugsunin er að fólk fái sömu kennslu og kynnist innbyrðis á æfingum og það skiptir verulegu máli“ segir Eyjólfur Óli Jónsson varðstjóri á Laugarvatni. „Munurinn á milli útstöðvanna og stöðvarinnar á Selfossi er í raun ekki mikill, það eru bara fleiri tæki á Selfossi“. Fyrirhugað er að bæta áttundu stöðinni við að Borg í Grímsesi.

Pressan eykst á Starmer

Pressan eykst á Starmer

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, reynir nú í örvæntingu að tryggja stöðu sína í embætti forsætisráðherra. Stjórnarandstæðingar hafa kallað eftir afsögn ráðherrans eftir að í ljós kom að Starmer og starfsfólk hans var meðvitað um vinskap Peter Mandelson og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein þegar sá fyrrnefndi var skipaður sendiherra í Bandaríkjunum.

Enn í haldi lögreglu vegna hnífsstunguárásar

Enn í haldi lögreglu vegna hnífsstunguárásar

Einn er enn í haldi lögreglu vegna hnífsstunguárásar í miðborg Reykjavíkur á laugardagskvöld. Þrír voru handteknir vegna málsins í gær. Tveimur hefur verið sleppt, segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglu. Árásin varð fyrir utan skemmtistað í miðborginni um klukkan hálf tólf fyrir miðnætti. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en árásarmaðurinn flúði af vettvangi. Áður komið til kasta lögreglu Að sögn Elínar Agnesar virðist ekki vera tenging á milli þeirra tveggja. Sá sem varð fyrir árásinni er á þrítugsaldri og var útskrifaður af spítala í gærmorgun. Áverkar hans reyndust ekki lífshættulegir. Rannsókn er í fullum gangi og lögreglan telur sig hafa einhverja mynd af tilefni árásarinnar. Árásarmaðurinn verður yfirheyrður í dag, en ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Elín Agnes segir hann áður hafa komið til kasta lögreglu, og líka annar hinna tveggja.

Jafn­rétti er ekki „aukaverkefni“

Jafn­rétti er ekki „aukaverkefni“

Sumum finnst að jafnrétti sé „alveg að koma“ hér á Íslandi, og kannski ekki furða. Við höfum jafnréttislög, jafnréttisáætlanir, og jafnréttisnefndir. Samt heyrum við – aftur og aftur – sögur af fólki sem upplifir útilokun, vantrú á kerfinu, óöryggi eða einfaldlega að rödd þeirra fái ekki sama vægi og raddir annarra.

Hárprúði stuðningsmaðurinn aldrei verið nær endamarkinu – Opinberar hvert planið er annað kvöld

Hárprúði stuðningsmaðurinn aldrei verið nær endamarkinu – Opinberar hvert planið er annað kvöld

Frank Ilet, hinn víðfrægi Manchester United-aðdáandi sem hefur beðið með að klippa sig þar til liðið vinnur fimm leiki í röð, hefur opinberað áætlun sína fyrir viðureignina gegn West Ham United annað kvöld. United heimsækir West Ham og gæti unnið sinn fimmta leik í röð, en bráðabirgðastjórinn Michael Carrick hefur farið stórkostlega af stað í Lesa meira