Efstur á lista Manchester United

Efstur á lista Manchester United

Sandro Tonali er sagður vera eitt helsta skotmark Manchester United fyrir miðsvæðið í sumar. Ítalinn hefur verið orðaður við brottför frá Newcastle undanfarnar vikur og er hann talinn vilja fara. Tonali, sem gekk til liðs við Newcastle frá AC Milan árið 2023 fyrir 55 milljónir punda, er metinn á um 100 milljónir punda. Auk United Lesa meira

Efstur á lista Manchester United

Efstur á lista Manchester United

Sandro Tonali er sagður vera eitt helsta skotmark Manchester United fyrir miðsvæðið í sumar. Ítalinn hefur verið orðaður við brottför frá Newcastle undanfarnar vikur og er hann talinn vilja fara. Tonali, sem gekk til liðs við Newcastle frá AC Milan árið 2023 fyrir 55 milljónir punda, er metinn á um 100 milljónir punda. Auk United Lesa meira

Ástarbréf til upprunans: Gleðileikur Bad Bunny í hálfleik Ofurskálarinnar

Ástarbréf til upprunans: Gleðileikur Bad Bunny í hálfleik Ofurskálarinnar

Tónlistamaðurinn Bad Bunny, sem heitir réttu nafni Benito Antonio Martínez Ocasio, bauð upp á sannkallaða gleðiveislu með rómanskri sveiflu í hálfleik Ofurskálarinnar í nótt. Miikil eftirvænting er jafnan fyrir tónlistaratriðinu í úrslitaleik NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta og var þetta ár engin undantekning. En eins og svo margt annað í Bandaríkjunum um þessar mundir var aðdragandinn þrunginn pólitískum undirtónum. Smellið hér til að sjá atriðið í heild sinni. Tónlistarmaðurinn Bad Bunny bauð upp á fölskvalausa gleði í hálfleik Ofurskálarinnar. Hann hélt rómönskum hefðum á lofti með skilaboðunum: Saman erum við Ameríka. Forseti Bandaríkjanna var ekki hrifinn. Bad Bunny er fæddur á eyjunni Puerto Rico í Karíbahafi, sem er hluti af Bandaríkjunum, en þó ekki fullgilt ríki. Hann syngur alfarið á móðurmáli sínu, spænsku, og er samkvæmnt flestum mælikvörðum vinsælasti tónlistarmaður heims. Umdeildar aðgerðir innflytjendastofnunar Bandaríkjastjórnar síðustu mánuði hafa að miklu leyti beinst að fólki af rómönskum uppruna. Bad Bunny steig inn í þau mál af krafti á dögunum þegar hann hnýtti í stjórnvöld þegar hann tók á móti Grammy-verðlaunum vestanhafs. Undirtónninn í atriðinu í nótt var hins vegar gleði og eining frekar en hörð gagnrýni á aðgerðir stjórnvalda gegn óskráðum innflytjendum. Hálfleiksatriði Ofurskálarinnar eru yfirleitt krydduð með óvæntum gestum og í nótt voru það söngkonan Lady Gaga og latínó-sjarmatröllið Ricky Martin. Martin var einmitt einn af brautryðjendum rómanskra tónlistarmanna inn í meginstraum bandaríkskrar tónlistar. Þá voru ýmis frægðarmenni í hópi dansara á vellinum, meðal annars leikarinn Pedro Pascal og tónlistarkonan Cardi B, en þau eiga bæði rómanskar rætur. „Enginn skilur orð!“ Viðbrögð Donalds Trump Bandaríkjaforseta létu ekki á sér standa. Í færslu á samfélagmiðli sínum Truth Social sagði Trump að atriði hafi verið eitt það versta frá upphafi, og móðgun við mikilleika Bandaríkjanna. Þá hafi dansatriðin verið ógeðsleg, sérstaklega fyrir börnin sem horfðu á. „Enginn skilur orð að því sem þessi gaur segir,“ sagði Trump. Það er þó orðum aukið því að um 40 milljónir íbúa Bandaríkjanna hafa spænsku að móðurmáli, samkvæmt þjóðskrá Bandaríkjanna , og enn fleiri skilja spænsku.

HPE verðlaunar OK fyrir nýsköpun

HPE verðlaunar OK fyrir nýsköpun

Tæknifyrirtækið OK hefur hlotið viðurkenninguna Årets HPE Innovations Partner 2025 á HPE Partner Awards, sem haldin voru í Kaupmannahöfn um helgina. Verðlaunin eru veitt þeim samstarfsaðila sem skarar fram úr í nýsköpun og árangri í lausnum byggðum á þekkingu frá HPE. Viðurkenningin endurspeglar öflugt samstarf, lausnamiðaða hugsun og faglega nálgun í verkefnum þar sem áhersla Lesa meira

HPE verðlaunar OK fyrir nýsköpun

HPE verðlaunar OK fyrir nýsköpun

Tæknifyrirtækið OK hefur hlotið viðurkenninguna Årets HPE Innovations Partner 2025 á HPE Partner Awards, sem haldin voru í Kaupmannahöfn um helgina. Verðlaunin eru veitt þeim samstarfsaðila sem skarar fram úr í nýsköpun og árangri í lausnum byggðum á þekkingu frá HPE. Viðurkenningin endurspeglar öflugt samstarf, lausnamiðaða hugsun og faglega nálgun í verkefnum þar sem áhersla Lesa meira

Ísland kallar óvænt inn fimmta keppandann á ÓL

Ísland kallar óvænt inn fimmta keppandann á ÓL

Ísland fékk auka sæti í alpagreinum kvenna á Vetrarólympíuleikunum sem nú standa yfir í Mílanó-Cortina. Sonja Lí Kristinsdóttir hefur bæst í hóp Íslendinga og verða því alls fimm íslenskir keppendur. Sonja er ríkjandi Íslandsmeistari í svigi, fædd árið 2006 og keppir fyrir Skíðafélag Akureyrar. Hún mun keppa í stórsvigi sunnudaginn 15. febrúar og svigi miðvikudaginn 18. febrúar, líkt og Elín Elmarsdóttir Van Pelt. Sonja fetar í fótspor föður síns Kristins Magnússonar sem keppti á Ólympíuleikunum árið 2002 í Salt Lake City í stórsvigi og svigi. Stjórn ÍSÍ ákvað að veita Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur ekki þetta aukasæti en hún er enn í raun efst samkvæmt röðun inn á leikana. Áður hafði Elín fengið sæti Hólmfríðar vegna meiðsla þeirra síðarnefndu. Hólmfríður gagnrýndi sambandið þar sem hún taldi sig vera keppnisfæra. Hólmfríður hefur verið á leikunum til að styðja við Dag Benediktsson. Hún hefur verið í bænum Predazzo þar sem skíðagangan fer fram. Hvers vegna fær Ísland sætið? Ísland fær auka sætið vegna stöðu á alþjóðlegum stigalista Ólympíuleikanna. Stigasöfnunin átti sér stað í aðdraganda leika með frammistöðu á alþjóðlegum mótum. Hólmfríður Dóra var þar fremst í flokki en stig Elínar, Sonju og fleiri telja einnig. Frestur til að taka ákvörðun um sætið var klukkan 21:00 í gærkvöldi.

Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í Reykjavík

Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í Reykjavík

Ari Edwald leiðir lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér á Facebook. Þar segist hann hafa tekið áskorun uppstillingarnefndar flokksins og telji reynslu sína úr atvinnulífi, félagasamtökum og stjórnmálum nýtast vel í verkefnum borgarinnar. Ari, sem lengi hefur verið kenndur við Sjálfstæðisflokkinn, segir pólitískar áherslur sínar ekki hafa breyst en að hann finni...

Bolungavík: Brák byggir 6 íbúðir

Bolungavík: Brák byggir 6 íbúðir

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur borist umsókn frá Brák íbúðafélagi hses. um stofnframlag ríkisins á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016. Sótt er um vegna byggingar á 6 íbúðum í Lundahverfi ætluðum fyrir tekju- og eignalága á vinnumarkaði. Stofnvirði íbúða skv. umsókn er 358.962.408 kr.Bæjarráð staðfestir að framlag sveitarfélagsins kr.43.075.489, þar af er beint fjárframlag […]

Sævar Karl selur einstaka eign

Sævar Karl selur einstaka eign

Sævar Karl Ólason, tískufrömuður og myndlistarmaður og eiginkona hans, Erla Þórarinsdóttir, hafa sett einbýlishús sitt á Smáragötu 4 á sölu. Eignin er skráð á Sævar Karl og óskað er eftir tilboði. Húsið er 370 fm á þremur hæðum byggt árið 1931 og er með bílskúr og stórum garði í miðborginni. Húsið hefur verið í eigu Lesa meira