Haraldur lék lokahringinn á 60 höggum og náði öðru sæti

Haraldur lék lokahringinn á 60 höggum og náði öðru sæti

Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús sýndi stórkostlega frammistöðu á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í golfi í dag. Hann lék lokahringinn á Dormy Open mótinu í Svíþjóð á 60 höggum eða 11 höggum undir pari og náði öðru sæti. Þar með fer Haraldur úr 156. sæti upp í 54. á stigalista mótaraðarinnar. Haraldur lék besta hring allra á mótinu á lokahringnum í dag.IMAGO Haraldur var í hársbreidd frá því að leika lokahringinn á 59 höggum en fuglapútt hans á átjándu endaði á brún holunnar. Haraldur varð einu höggi á eftir sigurvegaranum Anders Emil Ejlersen frá Danmörku. Lokastaðan Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), Nick Carlson (GM), og Sigurður Arnar Garðarsson (GKG) voru einnig á meðal keppenda á mótinu.

Fenerbahce reynir við Ederson

Fenerbahce reynir við Ederson

Fenerbahce í Tyrklandi er að reyna við markvörðinn Ederson sem spilar með Manchester City á Englandi. Fabrizio Romano greinir frá en Fenerbahce bauð upphaflega 12 milljónir evra í brasilíska landsliðsmanninn og var því boði hafnað. Fyrr í sumar var talað um að Ederson væri fáanlegur fyrir þrjár milljónir evra en það virðast hafa verið falsfréttir. Lesa meira

Tannkrem gert úr hári þykir byltingarkennt

Tannkrem gert úr hári þykir byltingarkennt

Tannkrem, sem er búið til úr hári, er að sögn byltingarkennt því það getur gert við tannskemmdir á byrjunarstigi. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar vísindamanna við King´s College London skólann að sögn Sky News. Þeir komust að því að keratín, sem er prótín í hári, húð og ull, getur unnið gegn tannskemmdum. „Við teljum þetta vera byltingarkennt,“ sagði Dr. Sherif Elsharkawy, einn vísindamannanna, Lesa meira

Ísland án Orra Steins gegn Aserb­aísjan og Frakklandi

Ísland án Orra Steins gegn Aserb­aísjan og Frakklandi

Karlalandslið Íslands í fótbolta hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku fyrir fyrstu leiki sína í undankeppni HM. Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson fór meiddur af velli í leik með liði sínu Real Sociedad í gær gegn Real Oviedo. Orri Steinn er meiddur og missir af landsleikjunum í september.RÚV / Mummi Lú Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hefur tekið Hjört Hermannsson inn í hópinn í stað í Orra. Aron Einar Gunnarsson hefur einnig forfallast og kom Brynjólfur Willumsson inn í hans stað. Ísland mætir Aserbaísjan á Laugardalsvelli á föstudaginn 5. september og Frakklandi í París 9. september.

„Við getum það“: 10 ár síðan Merkel bauð flóttamenn velkomna með fleygum orðum

„Við getum það“: 10 ár síðan Merkel bauð flóttamenn velkomna með fleygum orðum

„Wir schaffen das.“ Við getum þetta. Í því kristallaði þáverandi kanslari stefnu Þýskalands í hælisleitendamálum og setti mark sitt á framtíð Þjóðverja sem enn gætir í dag. 10 ár eru í dag síðan Angela Merkel, þáverandi Þýskalandskanslari, lét fleyg orð falla og bauð hælisleitendur frá Mið-Austurlöndum velkomna þangað til lands. Og fólk streymdi að, Þjóðverjum ýmist til ánægju eða ama, og upp spruttu bæði fjölmenningarleg samfélög og harðlínustjórnmálaöfl, sem einsettu sér að vinna gegn áhrifum innflytjendanna. En hvernig tókst til – gátu Þjóðverjar það? 1,2 milljónir manna sóttu um hæli í Þýskalandi árin 2015 og 16. Langflestir frá stríðshrjáðum löndum; Sýrlandi, Írak og Afghanistan, þar sem fólk ýmist sá fram á að hryðjuverkasamtökin ISIS myndu gleypa heimaland þeirra í sig, eða flúði blóðug borgarastríð og ofríki einræðisherra. Ekkert ríki Evrópusambandsins hefur tekið við fleiri hælisleitendum. Vel innan við milljón þeirra eru orðnir þýskir ríkisborgarar og þýskukunnáttu þykir ábótavant. Fram kemur í samantekt Deutsche Welle um þessi tímamót , að rétt ríflega helmingur karlkyns hælisleitenda kunni þýsku en rétt um þriðjungur kvenna. Ríflega helmingur sem sótti um hæli fyrir áratug sagðist hafa fengið hlýjar móttökur en sjö árum síðar sýndu kannanir að hlutfallið hafði lækkað til muna. Nokkrum sinnum hafa hælisleitendur frá Mið-Austurlöndum framið ofbeldis- og voðaverk í Þýskalandi, sem hefur breytt skoðunum almennings á hælisleitendamálum og í mörgum tilfellum gert fólk hrætt við að hryðjuverkasamtök kunni að hafa hreiðrað um sig í Þýskalandi. Tölfræði lögreglu sýnir að fólk af erlendum uppruna eru gerendur í 35% allra sakamála þar í landi, þrátt fyrir að telja aðeins 17% íbúa Þýskalands. Það er þó ekki þar með sagt að hælisleitendur eigi alltaf í hlut. Erlendir ferðamenn og meðlimir alþjóðlegra glæpasamtaka brjóta vitaskuld líka af sér þar í landi. Verulega dró úr hælisumsóknum í Þýskalandi eftir flóttamannastrauminn 2015 og 16. Eftir innrás Rússa í Úkraínu 2022 kom þó önnur jafnvel stærri bylgja og í dag hafa á fjórðu milljón manna af erlendum uppruna sest að í Þýskalandi. Árið 2015 sá mikill minnihluti Þjóðverja ástæðu til þess að fækka dvalarleyfum fyrir hælisleitendur. Það hefur þó breyst og í dag vilja 68% Þjóðverja ekki taka við fleirum á flótta. Það helst í hendur við fylgisaukningu fjarhægriflokksins Alternativ fur Deutschland, AfD, sem breyttist á 10 árum úr smáflokki í ráðandi afl í þýskum stjórnmálum. Kanslari Þýskalands, Friedrich Merz, hefur sagt að stefna flokkssystur hans og fyrrum mótherja innan Kristilegra demókrata, hafi augljóslega ekki gengið upp. En hvað finnst henni sjálfri? „Það er ferli í sjálfu sér. En við höfum áorkað miklu og það sem enn þarf að gera, þarf að gera af meiri áræðni. En fyrir mitt leyti skiptir mjög, mjög miklu máli hvernig menn nálgast þetta málefni, sem er mjög flókið, “ segir hún í nýlegu viðtali við þýska ríkissjónvarpið . Hún segir að allt þetta fólk hafi þegar verið komið til Evrópu. Fótgangandi, með aleiguna í bakpokum, haldndi á ungabörnum, alla leið frá heimkynnum sínum í Mið-Austurlöndum. „Og þá voru valkostirnir: Tökum við á móti þeim? Eða reynum við að gera eitthvað, sem að mínu mati hefði alls ekki gengið, til þess að bægja þeim frá með því að sprauta á það með brunaslöngum eða öðru ofbeldi. Það hefði aldrei verið til umræðu í mínum bókum og ég hefði aldrei samþykkt slíkt.“

Dramatískt sigurmark Brighton gegn Man City

Dramatískt sigurmark Brighton gegn Man City

Óvænt úrslit urðu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar Brighton vann 2-1 sigur á Manchester City. Erling Haaland kom City yfir á 34. mínútu en James Milner jafnaði úr vítaspyrnu um miðjan seinni hálfleik og Brajan Gruda skoraði dramatískt sigurmark Brighton á 89. mínútu. Þetta var fyrsti sigur Brighton í deildinni og annað tap Man City í röð. Leikmenn Brighton fagna dramatísku sigurmarki sínu gegn Manchester City.AP / Ian Walton Þá vann West Ham 3-0 útisigur á Nottingham Forest þar sem staðan var markalaus fram á 84. mínútu. Liverpool og Arsenal mætast í stórleik helgarinnar klukkan 15:30 og lokaleikurinn verður viðureign Aston Villa og Crystal Palace klukkan 18.