
Víkingur R. – Breiðablik, staðan er 0:0
Víkingur úr Reykjavík tekur á móti Breiðabliki í toppslag 21. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu á Víkingsvelli klukkan 19.15.
Víkingur úr Reykjavík tekur á móti Breiðabliki í toppslag 21. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu á Víkingsvelli klukkan 19.15.
Pólland og Ísland mætast í þriðju umferð D-riðils á Evrópumóti karla í körfuknattleik í Katowice í Póllandi klukkan 18.30.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er kominn til Tianjin í Kína þar sem hann tekur þátt í leiðtogafundi Shanghai-samstarfsins (SCO), sem hefur það meðal annars að markmiði að draga úr áhrifum Vesturlanda í alþjóðamálum.
Ökumaður mótorhjóls var fluttur slasaður á sjúkrahús eftir að hafa lent í árekstri við bíl á Suðurlandsvegi síðdegis í dag. Hann er ekki talinn vera í lífshættu.
Stjarnan skein skært þegar hún vann 3-2 sigur á KA í Bestu deild karla í fótbolta í dag, eftir að hafa lent 2-0 undir. Sigurinn er afar mikilvægur fyrir Garðbæinga í toppbaráttu deildarinnar. Hallgrímur Mar Steingrímsson kom KA yfir með marki úr vítaspyrnu á 45. mínútu og Birnir Snær Ingason bætti svo við öðru marki fyrir norðanmenn snemma í seinni hálfleik. En viðsnúningur Stjörnunnar hófst þegar Benedikt Warén minnkaði muninn í 2-1 á 74. mínútu. Andri Rúnar Bjarnason jafnaði úr vítaspyrnu á 80. mínútu og Guðmundur Baldvin Nökkvason skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Stjarnan er nú með 37 stig í 3. sæti þremur stigum á eftir toppliði Vals. Guðmundur Baldvin Nökkvason skoraði sigurmark Stjörnunnar.RÚV / Mummi Lú
Stjarnan kom til baka eftir að hafa lent 2-0 undir gegn KA og fór með 3-2 sigur af hólmi í leik liðanna í 21. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld. Það var Guðmundur Baldvin Nökkvason sem tryggði Stjörnunni stigin þrjú með næstsíðasta sparki leiksins.
Stjarnan vann magnaðan endurkomusigur á KA, 3:2, í 21. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í Garðabæ í kvöld.
Stjarnan kom til baka eftir að hafa lent 2-0 undir gegn KA og fór með 3-2 sigur af hólmi þegar liðin áttust við í 21. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld. Það var Guðmundur Baldvin Nökkvason sem tryggði Stjörnunni stigin þrjú með næstsíðasta sparki leiksins.
Eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjum spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu þurftu Spánarmeistarar Barcelona að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Rayo Vallecano í kvöld.
Rayo Vallecano og meistarar Barcelona eigast við í spænsku 1. deildinni í fótbolta.
Icelandic Queer Film Festival verður haldin í fyrsta sinn dagana 4. til 7. september í Bíó Paradís. Þrjátíu ár eru síðan fyrsta hinsegin kvikmyndahátíðin var haldin á Íslandi, Hinsegin bíódagar, hugarfóstur Kristínar Ómarsdóttur og Hrafnhildar Gunnarsdóttur. „Við vitum að við erum ekki að finna upp hjólið því hún braut blað í íslenskri menningarsögu. Heimili hátíðarinnar var þá í gamla Regnboganum og...
Kris Jenner var á dögunum í viðtali þar sem hún greindi frá því að hún hafi farið í andlitslyftingu, 15 árum eftir sams konar aðgerð.
Stjarnan 3 – 2 KA 0-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson(víti) 0-2 Birnir Snær Ingason 1-2 Benedikt V. Warén 2-2 Andri Rúnar Bjarnason(víti) 3-2 Guðmundur Baldvin Nökkvason Stjarnan vann ótrúlegan sigur í Bestu deild karla í kvöld er liðið mætti KA á heimavelli sínum í Garðabæ. Stjarnan lenti 0-2 undir gegn KA á Samsung vellinum en tókst Lesa meira
49 milljónir barna voru á flótta í heiminum undir lok síðasta árs, flest þeirra frá Súdan, Myanmar, Gaza, Kongó og Afganistan. Það er þreföldun frá árinu 2010. Ástæðan er meðal annars aukin átök og minni framlög ríkja til þróunarsamvinnu og neyðaraðstoðar. Ísland hefur fundið fyrir þessari fjölgun og 2500 börn á flótta hafa fengið dvalarleyfi undanfarin átta ár. UNICEF á Íslandi, Rauði krossinn á Íslandi og Barna- og fjölskyldustofa héldu á dögunum, í sameiningu, opið málþing um stöðu og velferð barna á flótta. Ólíkar aðstæður eftir stöðu innan kerfisins Börn á flótta á Íslandi búa oft við gjörólíkar aðstæður og staða þeirra fer eftir því hvernig þau eru skilgreind í kerfinu. Félagsmálaráðuneytið hyggst breyta móttöku flóttafólks. Samningar við sveitarfélög um þjónustu við flóttafólk voru ekki endurnýjaðir og Vinnumálastofnun á að sjá um móttöku og þjónustu. Mannúðarsamtök hafa áhyggjur af þeirri breytingu. Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, segir að á Íslandi séu þrír hópar flóttabarna. Í fyrsta lagi séu það börnin sem fær dvalarleyfisumsóknir samþykktar og fara inn í íslenska kerfið. Í öðru lagi eru umsækjendur sem eru búnir að fá höfnun eða synjun á umsókn sinni og Tótla segir að sá hópur veki áhyggjur. „Svo er það þriðji hópurinn sem er búinn að fá synjun eða höfnun á umsókninni sinni, eða af einhverjum ástæðum fellur utan þessara kerfa. Og þar er hópur sem er í raun í engri þjónustu, þar eru börn sem eru ekki í skólakerfinu. Fólk sem á ekki heimili og fellur utan kerfanna. Hópur sem við höfum gríðarmiklar áhyggjur af.“ Ísland hefur lögfest Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og stjórnvöldum ber að tryggja réttindi allra barna, óháð uppruna eða stöðu. Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri hjá UNICEF á Íslandi, segir það vera lögbundin mannréttindi barna að fá velferðarþjónustu, heilbrigðisþjónustu, menntun og að búa við öryggi. „Þannig að í öllum ákvörðunum stjórnvalda þurfa þau alltaf að horfa til þessa, horfa til áhrifanna á börn og reyna að koma í veg fyrir að þau verði fyrir einhvers konar mannréttindabrotum og tryggja að þau fái þjónustuna sem þau þurfa til þess að lifa af og þroskast.“ Breytingar á móttöku flóttafólks Félagsmálaráðuneytið hyggst breyta móttöku flóttafólks. Samningar við sveitarfélög um þjónustu við flóttafólk voru ekki endurnýjaðir og Vinnumálastofnun á að sjá um móttöku og þjónustu. Félagsmálaráðuneytið hyggst breyta móttöku flóttafólks. Samningar við sveitarfélög um þjónustu við flóttafólk voru ekki endurnýjaðir og Vinnumálastofnun á að sjá um móttöku og þjónustu. Mannúðarsamtök hafa áhyggjur af þeirri breytingu. UNICEF á Íslandi og Barnaheill efast um getu stofnunarinnar til að mæta þörfum barna sem hafa verið í erfiðum aðstæðum. Eva segir að Vinnumálastofnun búi ekki yfir sömu innviðum og sveitarfélögin, þegar kemur að möguleikunum til að hlúa vel að börnum á flótta. „Það þarf að hugsa ofsalega vel um þessi börn á meðan þau eru hérna, okkur ber skylda til þess. En Vinnumálastofnun er stofnun, hún er ekki sveitarfélög og hefur ekki sama aðgengi að þessum innviðum.“ Tótla segir að stjórnvöld verði að virða barnasáttmálann. „Við verðum að tryggja að öll börn hafi aðgang að skóla, að heilbrigðisþjónustu, að heimilum, að leik. Að þau verði hluti af íslensku samfélagi, óháð því hvaða stöðu þau hafa. Og það sé tryggð samfella í þjónustu við þau.“ Nýr samningur Rauða krossins við dómsmálaráðuneytið Rauði krossinn hefur komið að þjónustu við flóttafólk á Íslandi síðan 1956, þegar fyrsta flóttafólkið kom frá Ungverjalandi. Síðustu ár hefur félagið haft samninga við stjórnvöld um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal verkefna sem Rauði krossinn hefur sinnt er Félagið hefur sinnt félagslegum stuðningi og félagsstarfi við umsækjendur um alþjóðlega vernd um margra ára skeið, fyrstu árin tengt málsvarahlutverkinu en eftir að því lauk gilti um það sérstakur samningur við Vinnumálastofnun samkvæmt opinberu útboði. Stofnunin ákvað að endurnýja ekki þann samning við félagið þegar samningurinn rann út á vordögum 2025, heldur veita þjónustuna innan stofnunarinnar. Rauði krossinn hefur þannig lokið þjónustu sinni við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Pólland og Ísland mætast í þriðju umferð D-riðils á Evrópumóti karla í körfuknattleik í Katowice í Póllandi klukkan 18.30.
Eftir troðfulla íþróttahelgi er rólegt yfir íþróttalífinu á sportrásum Sýnar þennan mánudaginn.