
Grindavík lagði Íslandsmeistarana – auðvelt hjá Keflavík
Grindavík gerði frábæra ferð í Ólafssal að Ásvöllum í Hafnarfirði og vann þar Íslandsmeistara Hauka, 85:68, í þriðju umferð úrvalsdeildar kvenna í körfubolta í kvöld.
Grindavík gerði frábæra ferð í Ólafssal að Ásvöllum í Hafnarfirði og vann þar Íslandsmeistara Hauka, 85:68, í þriðju umferð úrvalsdeildar kvenna í körfubolta í kvöld.
Hlaðvarpsstjórnandinn, lífstílsþjálfinn og lífskúnstnerinn Helgi Jean Claessen áttaði sig eftir margra ára vinnu í andlega ferðalaginu á því að einkvæni ætti ekki við hann. Hann segir vandamál í samböndum oft felast í því að fólk yfirgefi sjálft sig til að þóknast maka sínum.
Tindastóll hafði í raun öll völd á vellinum frá byrjun leiks og í hálfleik var staðan orðin 59-42 fyrir heimamenn. Ragnar Ágústsson var stigahæstur Skagfirðinga með 28 stig og Taiwo Badmus bætti við 22 stigum. Næsti leikur Tindastóls í keppninni verður í Tékklandi á mánudag á móti BK Opava. Tindastóll hefur nú unnið báða leiki sína í Norður-Evrópukeppninni til þessa.
Tindastóll vann norska liðið Gimle í 2. umferð ENBL-deildarinnar í körfubolta með 37 stiga mun, 125:88 og var þetta fyrsti Evrópuleikur Skagfirðinga á heimavelli sínum, Síkinu á Sauðárkróki.
Haukar og Grindavík voru bæði með fullt hús stiga í Bónus deild kvenna í körfubolta fyrir leik liðana í kvöld. Eftir mikla baráttu í Ólafssal er það Grindavík sem er áfram með fullt hús eftir þrjár umferðir. Lokatölur 68-85 Grindavík í vil.Umfjöllun og viðtöl væntanleg..
Haukar og Grindavík voru bæði með fullt hús stiga í Bónus deild kvenna í körfubolta fyrir leik liðana í kvöld. Eftir mikla baráttu í Ólafssal er það Grindavík sem er áfram með fullt hús eftir þrjár umferðir. Lokatölur 68-85 Grindavík í vil.Leikurinn fór fjörlega af stað og náðu bæði lið að komast á blað með sinni fyrstu sókn. Grindavík var skrefinu á undan og hjálpaði fastur varnarleikur Hauka þar. Grindavík fór tólf sinnum á vítalínuna og setti niður tíu af þessum vítum á meðan Haukar fóru þrisvar á vítalínuna og settu niður tvö. Grindavík leiddi eftir fyrsta leikhluta 19-25.Haukar mættu af krafti út í annan leikhluta og byrjuðu strax að saxa niður forskot Grindavíkur. Amandine Toi og Tinna Guðrún Alexandersdóttir settu niður þrista með stuttu millibili fyrir Hauka sem opnaði leikinn upp á gátt. Þóra Kristín Jónsdóttir kom Haukur yfir áður en Grindavík tók aftur tök á leiknum.Grindavík fór að finna Isabellu Ósk Sigurðardóttur undir körfunni og náði aftur í gott forskot og leiddi með sex stigum 38-44 í hálfleik.Það voru gestirnir í Grindavík sem byrjuðu seinni hálfleikinn betur og náðu að komast í ellefu stiga forskot. Það er eins og það hafi komið smá værukærð í lið Grindavíkur eftir það og Haukar náðu upp flottum kafla þar sem þær náðu að minnka forskotið niður í tvö stig. Öflugur endakafli hjá Grindavík endaði svo með flautu þrist frá Ellen Nyström og staðan 56-63 eftir þriðja leikhluta.Grindavík fundu annan gír í fjórða leikhluta og fóru langt með að gera út um leikinn um miðbik leikhlutans. Grindavík náði góðu forskoti sem var of mikið fyrir Íslandsmeistara Hauka að saxa niður og gestirnir enduðu á að vinna góðan sautján stiga sigur 68-85.Atvik leiksinsGrindavík skrúfaði upp hitann í fjórða leikhluta. Þristarnir fóru að detta og átti Haukar fá svör við því.Stjörnur og skúrkarEllen Nyström var öflug í liði Grindavíkur í kvöld og skoraði 22 stig. Hún reyndist Haukum virkilega erfið viðreignar. Isabella Ósk Sigurðardóttir átti flotta innkomu af bekknum hjá Grindavík og var með 19 stig.Hjá Haukum var Krystal-Jade Freeman atkvæðamest með 22 stig.DómararnirDómarar leiksins voru Kristinn Óskarsson, Birgir Örn Hjörvarsson og Dominik Zielinski.Fyrst um sinn fannst mér þeir stoppa leikinn kannski óþarflega oft og deila út villum full hratt en eftir því sem á leið slaknaði aðeins á þeim og það komst ögn meira flæði í leikinn. Alls ekki sammála öllum dómum en heilt yfir var þetta allt í lagi.Stemingin og umgjörðÞað var fínasta stemning hér í Ólafssal í kvöld. Íslandsmeistararnir tóku vel á móti öllum og buðu upp á fínustu umgjörð.Viðtöl<div class="iframely-embed"><div class="iframely-responsive" style="padding-bottom: 56.25%; padding-top: 120px;"><a href="https://www.visir.is/g/20252789381d/-vid-aetlum-aud-vitad-ad-vinna-thetta-allt-" data-iframely-url="https://cdn.iframe.ly/api/iframe?url=https%3A%2F%2Fwww.visir.is%2Fg%2F20252789381d%2F-vid-aetlum-aud-vitad-ad-vinna-thetta-allt-&key=6bbe5b2ccff11618fc9161e373e22354"></a></div></div><script async src="https://cdn.iframe.ly/embed.js" charset="utf-8"></script>Embed: „Við ætlum auðvitað að vinna þetta allt“ - Vísirhttps://www.visir.is/g/20252789381d/-vid-aetlum-aud-vitad-ad-vinna-thetta-allt-MF5A0885Þorleifur Ólafsson stýrði liði Grindavíkur til sigurs í fyrstu umferð. „Við sýndum yfirvegun undir þessari pressu“„Frábært að vinna. Við gerðum rosalega mikið gott“ sagði Þorleifur Ólafsson þjálfari Grindavíkur eftir sigurinn í kvöld.„Við sýndum yfirvegun undir þessari pressu sem að Haukar eru svolítið seigar í. Það er ákefð í þeim og kraftur. Ég er virklega sáttur með það sérstaklega hvernig við enduðum þetta“Það var jafnræði með liðunum lengst af en Grindavík stakk af undir restina og hafði á endanum flottan sautján stiga sigur. „Þetta er bara yfirvegun. Við vorum rólegri og vorum að nýta okkur þessar glufur sem að voru að opnast þegar við vorum að komast inn í teig. Við vorum oft að komast framhjá þeim og búa til tvo á einn en sendingarnar voru lélegar“„Rangar ákvarðanartökur rosalega mikið í leiknum fyrir utan síðustu sex mínúturnar“ sagði Þorleifur Ólafsson. emil barjaEmil Barja þjálfari Hauka.„Vorum að gera bara mistök sem að við vorum búnar að tala um að ekki gera“„Mér fannst þær stjórna ótrúlega mikið tempóinu í leiknum“ sagði Emil Barja þjálfari Hauka svekktur eftir tapið. „Þær náðu að hægja á leiknum sem er kannski ekki það sem við ætluðum að gera. Mér fannst við svolítið detta inn í þeirra leik að vera bara hægar og ég held að það hafi svolítið bara tapað leiknum“Haukar héldu vel í við Grindavík sem var þó skrefinu framar lengst af en undir restina þá stakk Grindavík af með leikinn.„Við hættum svolítið hvernig sóknarleikurinn okkar var að flæða þegar það gekk vel. Við vorum að gera allt á fullu en svo allt í einu þá gírum við okkur alveg niður og verðum rosalega einhæfar og vorum að gera bara mistök sem að við vorum búnar að tala um að ekki gera“ sagði Emil Barja þjálfari Hauka eftir tapið.
Tindastóll mætir norska liðinu Gimle í 2. umferð ENBL-deildarinnar í körfubolta klukkan 19.15 í Síkinu á Sauðárkróki.
Portúgal tókst ekki að landa HM-farseðli í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Ungverjaland á heimavelli. Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk liðsins og setti met, og staða Portúgala er áfram góð.
AP / Alex Brandon Donald Trump Bandaríkjaforseti íhugar að leggja refsitolla á Spán vegna varnarmálaframlags ríkisins sem hann telur of lítið. Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hafa skuldbundið sig til að auka framlög til öryggis- og varnarmála í fimm prósent af vergri landsframleiðslu á næstu tíu árum. Spánn, sem ver hlutfallslega minnstu í varnarmál af ríkjum bandalagsins, hefur lýst því yfir að ekki verði einblínt á að mæta fjárhagslegum kröfum. Þess í stað verði áhersla lögð á að tryggja varnarlega getu ríkisins. „Mér finnst þetta mikil vanvirðing við NATO. Raunar er ég að íhuga að leggja á þá viðskiptarefsingar með tollum,“ sagði Trump á blaðamannafundi.
Einar Jóhannes Guðnason sækist eftir að leiða lista Miðflokksins í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu hans á Facebook. Hann segir mikinn skort á málsvara margra Kópavogsbúa í umræðunni, þá einkum hvað varðar Borgarlínu og skipulagsmál sem hann segir einkennast af ofurþéttingu og aðför að einkabílnum. „Það kemur kannski spánskt fyrir sjónum Lesa meira
England tryggði sér í kvöld sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins 2026 með stórsigri gegn Lettlandi í K-riðli undankeppninnar í Riga.
Tindastóll mætir norska liðinu Gimle í 2. umferð ENBL-deildarinnar í körfubolta klukkan 19.15 í Síkinu á Sauðárkróki.
Það var vitað fyrirfram að það yrði við ramman reip að draga fyrir Íslands- og bikarmeistarana í Fram. Nokkrir sterkir leikmenn liðsins hafa glímt við meiðsli að undanförnu, úrslit hafa ekki endilega alltaf fallið Fram í hag í byrjun leiktíðar og svo er Porto firna sterkt lið. Enda kom það á daginn að Porto náði snemma forystunni og leiddi með fimm marka mun í hálfleik, 16-11. Ívar Logi Styrmisson var markahæstur í liði Fram með sjö mörk og Theódór Sigurðsson skoraði sex mörk. Fram mætir norska liðinu Elverum í næsta leik Evrópudeildarinnar en fjórða lið riðilsins er Kriens-Luzern frá Austurríki.
Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska karlalandsliðinu í fótbolta fögnuðu sínum fyrsta sigri í F-riðli undankeppni HM 2026 í kvöld þegar liðið tók á móti Armeníu í Dublin.
Jarðskjálfti af stærðinni 2,3 varð undir austanverðu Ingólfsfjalli í kvöld.
Einn af hverjum tíu Ítölum bjó við fátækt árið 2024, samkvæmt nýrri rannsókn ítölsku hagstofunnar (Istat) sem birt var í dag.