
Neita að undirrita nýjar fjölmiðlareglur
Nokkrir bandarískir og alþjóðlegir fjölmiðlar hafa neitað að undirrita nýjar fjölmiðlareglur varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna. Þeir verða því sviptir blaðamannapössum sínum og fá ekki lengur aðgang að vinnuaðstöðu innan ráðuneytisins.